Viðskipti innlent

Tollstjóri vill sex milljónir frá Chuck ehf.

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vilhjálmur Sanne á Chuck Norris Grill sem býður upp á hamborgara og franskar á Laugaveginum.
Vilhjálmur Sanne á Chuck Norris Grill sem býður upp á hamborgara og franskar á Laugaveginum. vísir/gva
Chuck ehf. sem stofnað var í apríl 2014 við opnun Chuck Norris Grill á Laugaveginum hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. Úrskurðurinn var kveðinn upp í Héraðsómi Reykjavíkur þann 21. mars. Veitingastaðurinn Chuck Norris Grill er þó enn rekinn á Laugavegi en í öðru félagi.

Skiptastjórinn Pétur F. Gíslason segir í samtali við Vísi að málið sé á frumstigi. Fyrir liggi sex milljóna krafa Tollstjóra í búið en hluti þeirra sé sektargreiðslur vegna vanskila á ársreikningum.

Pétur segir að Chuck ehf. hafi verið skráð með vánúmer frá árinu 2015. Rekstur veitingastaðarins hafi því líklega um svipað leyti verið færður yfir á nýtt félag.

Chuck Norris grill á Laugavegi 30 hefur verið rekið þar frá því í apríl 2014. Meðal eigenda er Vilhjálmur Sanne sem hefur einnig verið einn eiganda barsins Dillon sem er á efri hæð í sama húsi.

Í Lögbirtingablaðinu er skorað á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum sínum fyrir undirrituðum skiptastjóra í búinu innan tveggja mánaða frá fyrri birtingu innköllunar þessarar.

Skiptastjóranum hefur ekki tekist að boða Vilhjálm enn á sinn fund. Ekki náðist í Vilhjálm við vinnslu fréttarinnar.

Uppfært klukkan 13:20

Vilhjálmur Sanne segir í samtali við Vísi að unnið sé að því að fá afturkalla gjaldþrotabeiðnina og fá úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur hnekkt. Hann ætli að vinna að því í samvinnu við skiptastjórann.

„Við ætlum að fá búið til baka, þegar búið er að skila inn ársreikningi og framtali ásamt leiðréttingu á vaski þá á félagið inneign hjá tollinum,“ segir Vilhjálmur.

„Þó að það sé vánúmer þá er enginn vsk skuld á félaginu, það var bara ekki sótt um að opna það aftur þegar það var allt greitt upp vegna þess að það var ekki verið að nota vsk númerið.“


Tengdar fréttir

Chuck Norris er glerharður

Vilhjálmur Sanne var að opna nýstárlegan grillstað á Laugaveginum þar sem þemað er Chuck Norris.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×