Sport

Hákarlaveiðar Miller gætu dregið dilk á eftir sér

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það var stuð hjá Miller.
Það var stuð hjá Miller.
NFL-stjarnan Von Miller hefur notið lífsins í Flórída síðustu daga og skellti sér meðal annars á veiðar sem eru í fjölmiðlum í dag.

Í veiðiferðinni fékk Miller hákarl á stöngina. Hann var dreginn um borð og síðan myndaði Miller sig með blóðugum hákarlinum.





Er dýraverndunarsamtökin PETA sáu þessar myndir þá brjáluðust þau og sendu umsvifalaust kvörtun til yfirvalda í Flórída vegna meðferðar Miller og félaga á hákarlinum.

Miller, sem er leikmaður Denver Broncos, sleppti hákarlinum eftir myndatökuna en nú er verið að skoða hvort hann hafi brotið af sér með hegðun sinni og þeir eru margir sem vilja draga hann til ábyrgðar.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×