Valskonur með fullt hús eftir sigur á Stjörnunni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. mars 2018 20:11 Úr leik Vals og Stjörnunnar í Pepsi deildinni síðasta sumar vísir/eyþór
Valur er með fullt hús siga eftir þrjá leiki í A-deild Lengjubikars kvenna eftir sigur á Stjörnunni í Egilshöll í kvöld. Valskonur urðu einum leikmanni færri þegar um rúmt korter var eftir af leiknum en það kom ekki að sök því Eygló Þrastardóttir skoraði sigurmarkið og eina mark leiksins aðeins mínútu eftir að rauða spjaldið fór á loft. Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir fékk rauða spjaldið fyrir að fara með takkana í andlit leikmanns Stjörnunnar, en það var óviljaverk. Eyjakonur sigruðu FH 1-3 fyrr í dag. Adrienne Jordan skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik sem tryggðu ÍBV forystu í leikhléi. Clara Sigurðardóttir bætti við þriðja marki ÍBV á 81. mínútu. Marjani Hing-Glover klóraði í bakkann fyrir FH á 86. mínútu en það dugði ekki til, ÍBV fór með 1-3 sigur. Staðan er þá þannig í A-deildinni að Valur er á toppnum með 9 stig, Breiðablik í öðru með sjö og Stjarnan er í þriðja sæti með 3. ÍBV er einnig með þrjú stig í fjórða sætinu. Þór/KA er með eitt stig og FH er á botninum án stiga. Stjarnan og ÍBV eiga þó leik til góða á hin liðin.
Íslenski boltinn Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna „Verður ekki sama hrútafýluauglýsing og í fyrra“ Rétt gíraður Eiður sé einn besti hafsent landsins „Erum bara á flottum stað miðað við árstíma“ Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 4-0 | Valskonur örugglega í úrslit Vestri steinlá í fyrsta leik Eiðs Arons „Var bara þrekvirki Óla Þórðar“ „Það breytti alveg planinu“ Baldur heimsækir Skagann í kvöld: „Var ekki í plönunum að koma heim“ Breiðablik gerði jafntefli við úrvalsdeildarlið frá Þýskalandi Tjallar héldu uppi stuðinu á Hlíðarenda: „Alveg trylltir“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í fyrsta leik Gylfa með Val Adam hafi nánast þvingað treyjuna upp á Gylfa: „Minn er heiðurinn“ „Þessir tveir mánuðir voru gríðarlega erfiðir“ Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍA 5-6 | Skagamenn unnu eftir vítaspyrnukeppni „Það er kannski ekkert gáfulegt“ Draumur Davíðs Smára rætist en kostnaðurinn tugir milljóna Myndir af Gylfa á fyrstu æfingunni á Íslandi sem leikmaður Vals Eftirminnilegustu heimkomurnar í íslenska fótboltanum Drepur varg, smíðar og er fyrirliði í Bestu deildinni Andrea Rán spilar á Íslandi í sumar Óli Valur aftur í raðir Stjörnunnar HK sækir leikmann sem hefur áður leikið með liðinu Dreymir um hitalagnir og höll Davíð Smári reiðubúinn að „falla á eigið sverð“ Sjá meira