Tapaði óvænt á móti Íslandi í október og var rekin í mars Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2018 16:00 Steffi Jones. Vísir/Getty
Þýska knattspyrnusambandið rak í dag þjálfara þýska kvennalandsliðsins en Steffi Jones fékk aðeins tæp tvö ár í starfinu. Tap á móti Íslandi átti þátt í endalokum hennar. Brottrekstur Steffi Jones kemur aðeins sex sögum eftir SheBelieves æfingamótið í Bandaríkjunum þar sem þýska liðið vann ekki leik og olli miklum vonbrigðum. Liðið tapaði 1-0 á móti bandaríska liðinu og 3-0 á móti því franska en gerði síðan 2-2 jafntefli við England. Áður hafði þýska liðið dottið út fyrir Dönum í átta liða úrslitum Evrópumótsins síðasta sumar eftir að hafa unnið sex Evrópumót þar á undan. Eitt af stærstu áföllunum var þó örugglega 3-2 tap liðsins á heimavelli á móti íslenska landsliðinu í október. Þýska liðið hafði fyrir leikinn unnið 37 heimaleiki í röð í undankeppni HM eða EM og þetta var fyrsta tap liðsins í undankeppni stórmóts í tuttugu ár.Der Deutsche Fußball-Bund hat Bundestrainerin Steffi Jones mit sofortiger Wirkung von ihren Aufgaben entbunden https://t.co/cUeWEK3HE7 — DFB-Frauenfußball (@DFB_Frauen) March 13, 2018 Hrost Hrubesch tekur við þýska landsliðinu tímabundið en framundan er barátta við Ísland og Tékkland um fyrsta sætið í riðlinum og þar með sæti á HM í Frakklandi 2019. Næstu leikir þýska landsliðsins í undankeppninni eru á móti Tékklandi og Slóveníu í apríl en íslenska landsliðið mætir Slóveníu og Færeyjum í sama landsleikjahléi. Steffi Jones tók við þýska landsliðinu af Silviu Neid eftir Ólympíuleikana í Ríó 2016 þar sem að þýska landsliðið vann gull. Þýsku stelpurnar unnu alls fern gullverðlaun á ellefu árum undir stjórn Silviu Neid.Steffi #Jones ist die Aufgabe als Trainerin mit großem Engagement und Einsatz angegangen, dafür möchte ich ihr im Namen des gesamten Präsidiums sehr herzlich danken. Viel Erfolg, lieber Horst, für die nächsten Spiele mit den @DFB_Frauen! — Reinhard Grindel (@DFB_Praesident) March 13, 2018 Þýska liðið lék 22 leiki undir stjórn Steffi Jones, vann þrettán þeirra og tapaði fimm. Liðið var með 59,1 prósent árangur undir stjórn hennar en 73,9 prósent árangur undir stjórn Silviu Neid.
Fótbolti Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Enski boltinn Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Enski boltinn Viðar Örn í KA Íslenski boltinn Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Leikmaður PSG biðst afsökunar á að hafa deilt niðrandi efni um LGBTQ-einstaklinga Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Fleiri fréttir Viðar Örn í KA Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Leikmaður PSG biðst afsökunar á að hafa deilt niðrandi efni um LGBTQ-einstaklinga Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Boehly fær að fjúka 2027 Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Sjá meira