Innlent

Sigríður Lovísa efst í stjórnarkjöri VR

Jakob Bjarnar skrifar
Sigríður Lovísa segir aukinn kaupmátt skipta alla máli en það þurfi að tryggja að launahækkanir fari ekki beint út í verðlagið.
Sigríður Lovísa segir aukinn kaupmátt skipta alla máli en það þurfi að tryggja að launahækkanir fari ekki beint út í verðlagið. VR
Sigríður Lovísa Jónsdóttir var efst í allsherjaratkvæðagreiðslu vegna kosninga til stjórnar VR með 1215 atkvæði eða rétt rúm átta prósent greiddra atkvæða. Atkvæði greiddu 3.345. Á kjörskrá voru alls 34.980. Kosningaþátttaka var því 9,56%. Yfirlýstir stuðningsmenn formannsins, Ragnars Þórs Ingólfssonar, náðu ekki meirihluta í stjórninni.

Niðurstöðurnar eru sem hér segir, en þær taka til sjö stjórnarmanna í stjórn VR – til tveggja ára samkvæmt fléttulista.

Sigríður Lovísa Jónsdóttir

Bjarni Þór Sigurðsson

Dóra Magnúsdóttir

Arnþór Sigurðsson

Guðrún Björk Hallbjörnsdóttir

Friðrik Boði Ólafsson

Ingibjörg Ósk Birgisdóttir

Þrír varamenn í stjórn VR – til eins árs: Agnes Erna Estherardóttir, Oddný Margrét Stefánsdóttir og Sigurður Sigfússon.

Tveir af yfirlýstum stuðningsmönnum Ragnars Þórs Ingólfssonar komust að í aðalstjórn. Stuðningsmenn hans hafa því ekki meirihluta í stjórninni.





Ef marka mál yfirlýstar áherslur Sigríðar Lovísu, sem hefur lengi starfað hjá Brimborg, verður aukinn kaupmáttur og jafnlaunamál á oddinum hjá VR á næstunni. En Sigríður Lovísa, sem er lærður mannauðsstjóri hjá Endurmenntun HÍ er einmitt að ljúka námi í viðskiptafræði með vinnu við Háskóla Íslands og er að skrifa BS ritgerð um jafnlaunavottun.

Sigríður Lovísa segir aukinn kaupmátt skipta alla máli en það þurfi að tryggja að launahækkanir fari ekki beint út í verðlagið. „Hærri persónuafsláttur, lægri vextir og verðbætur gæti komið sér vel fyrir alla, og áfram þarf að vinna að húsnæðisvandanum,“ voru kosningaloforðin.

Þá segir hún jafnréttismál sér ofarlega í huga: „Kynbundinn launamunur er því miður enn viðvarandi vandi á vinnumarkaði. Eyða þarf óútskýrðum launamun, en ekki eingöngu hjá konum og körlum, heldur öllum aðilum á vinnumarkaði sem vinna jafnverðmæt störf með sömu menntun og sömu reynslu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×