Tottenham í undanúrslit FA bikarsins

Einar Sigurvinsson skrifar
Christian Eriksen.
Christian Eriksen. visir/getty
Tottenham var ekki í vandræðum með Swansea í 8-liða úrslitum enska FA bikarsins í dag. Leiknum lauk með 3-0 sigri Tottenham en leikurinn fór fram í Wales.

Christian Eriksen kom Tottenham yfir á 11. mínútu leiksins með frábæru skoti fyrir utan teiginn. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins bætti Erik Lamela síðan við öðru marki Tottenham.

Christian Eriksen var síðan aftur á ferðinni á 62. mínútu leiksins þegar hann kom Tottenham í 3-0.

Tottenham er fyrsta liðið til að tryggja sig inn í undanúrslit enska FA bikarsins. Klukkan 19:45 í dag mun Manchester United taka á móti Brighton á Old Trafford í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Seinni tveir leikir undanúrslitanna fara síðan fram á morgun. Wigan og Southampton mætast síðan klukkan 13:30 á morgun. Leicester tekur því næst á móti Chelsea klukkan 16:30.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira