Innlent

Eldri hjón með 300 grömm af kókaíni innvortis

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Hjónin voru handtekin við komuna til landsins.
Hjónin voru handtekin við komuna til landsins. vísir/anton brink.
Eldri hjón voru handtekin í síðustu viku þegar þau komu til landsins með fíkniefni innvortis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum.

Hjónin, sem eru hollensk, voru samtals með 300 grömm af fíkniefnum innvortis. Karlmaðurinn, sem er um sextugt, var með fimmtán pakkningar af kókaíni innvortis og konan, sem er á sextugsaldri, var með tvær pakkningar af kókaíni innvortis.

Tollverðir stöðvuðu hjónin við komuna til landsins og voru þau í kjölfarið handtekin.

Rannsókn málsins er á lokastigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×