Lífið

Kate geislaði í grænu

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Katrín hertogaynja af Cambridge.
Katrín hertogaynja af Cambridge. Vísir/AFP
Það mátti greinilega sjá stækkandi kúlu hertogaynjunnar af Cambridge, Kate Middleton en hún fylgdi eiginmanni sínum í skrúðgöngu í tilefni af St.Patrick‘s Day.

Konunglega parið sótti árlega viðburðinn sem haldinn var í London í dag þar sem þau nutu skemmtanahaldsins í frekar köldu veðri. Kate hefur vakið athygli fyrir fágaðan fatasmekk sinn og mætti hún í grænni kápu frá Catherine Walker. Vilhjálmur bretaprins sem er ofursti Írsku lífvarðarsveitarinnar var í viðhafnarbúningi sínum.

Hjónin sem eiga fyrir tvö börn, Georg prins fjögurra ára og Karlottu prinsessu tveggja ára, á von á sínu þriðja barni í næsta mánuði og því styttist biðin eftir þriðja erfingja þeirra hjóna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×