Erlent

Lögmaður Trump krefst þess að Mueller verði stöðvaður

Samúel Karl Ólason skrifar
John Dowd, lögmaður Trump.
John Dowd, lögmaður Trump. Vísir/Getty
John Dowd, lögmaður Donald Trump, kallar eftir því að Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna stöðvi rannsókn Robert Mueller, sérstaks saksóknara, á afskiptum Rússa af forsetakosningunum 2016 og hvort að Trump hafi staðið í vegi réttvísinnar með því að reka James Comey, fyrrverandi yfirmann Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI. Gowd notar brottrekstur Andrew McCabe, næstráðanda FBI, sem fordæmi.

Hann segist vona að Rod Rosenstein, aðstoðardómsmálaráðherra sem er yfir Rússarannsókninni svokölluðu, fylgi „ljómandi og hugrökku“ fordæmi Jeff Sessions, dómsmálaráðherra, og siðferðisteymi FBI, og bindi enda á rannsóknina sem sé gölluð og spillt af pólitískum sjónarmiðum.

Dowd sagði Daily Beast að hann væri að tjá sig í starfi sínu sem lögmaður Trump en dró þó í land við aðra fjölmiðla og sagðist ekki vera tala fyrir forsetann.



Jeff Sessions rak Andrew McCabe í gærkvöldi, rúmlega sólarhring áður en hann ætlaði að setjast í helgan stein. McCabe hefur verið skotmark árása Trump forseta og repúblikana lengi.



Sessions segir ákvörðunina hafa verið tekna eftir viðamikla innri rannsókn á starfi McCabe. Þá sakar Sessions McCabe um að hafa lekið upplýsingum í fjölmiðla án leyfis, auk þess sem hann hafi ekki sýnt af sér þann heiðarleika og ábyrgð sem krafist er af aðstoðarforstjóra FBI.

Sjálfur er McCabe óánægður með ráðahaginn og segir brottreksturinn byggðan á rangfærslum. Þá vill hann meina að um sé að ráða árás á trúverðugleika sinn.

„Þetta er mismunun gagnvart mér vegna aðkomu minnar, gjörða minna og þess sem ég varð vitni að í kjölfar brottreksturs James Comey [fyrrverandi forstjóra FBI],“ sagði McCabe í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér vegna málsins. Bandaríkjaforseti rak Comey í maí í fyrra vegna aðkomu þess síðarnefnda að rannsókn á tölvupóstum Hillary Clinton, mótframbjóðanda Trumps í forsetakosningunum 2016.

McCabe er einnig vitni í rannsókn Mueller.

Í umfjöllun Washington Post segir að ef ummæli Dowd séu til marks um skoðun Trump og lögmannateymis hans séu um stefnubreytingu að ræða. Þeir hafi ávalt heitið því að starfa með rannsakendum Mueller.

Donald Trump hefur fagnað brottrekstri McCabe. Undanfarið ár hefur forsetinn ítrekað gagnrýnt McCabe, sem leiddi rannsókn FBI á meðferð Hillary Clinton á opinberum tölvupóstum.

Meðal þess sem Trump hefur gagnrýnt McCabe fyrir er að árið 2015 bauð eiginkona McCabe sig fram til ríkisþings Virginíu fyrir Demókrataflokkinn og fékk framboð hennar fjárhagslegan stuðning frá samtökum sem Terry McAuliffe, fyrrverandi ríkisstjóri og bandamaður Hillary Clinton, stýrir.

Þann 23. desember tísti forsetinn um McCabe og að hann ætlaði sér að setjast í helgan stein. Trump virtist óánægður með að geta mögulega ekki rekið hann áður.



Vert er að benda á að framboð eiginkonu McGabe var misheppnað og því lauk árið 2015, áður en hann varð næstráðandi FBI. Þegar hann var settur yfir tölvupóstarannsóknina úrskurðuðu innri rannsakendur FBI að enginn hagsmunaárekstur væri til staðar.

Þegar forsetinn rak James Comey, forstjóra FBI, í maí i fyrra var Comey staddur í Kaliforníu. Flaug hann heim með flugvél FBI þann dag. Trump er sagður hafa verið foxillur yfir því og hringt í McCabe, sem þá var starfandi forstjóri FBI, til að spyrja hvers vegna Comey hefði fengið að fljúga heim með vél stofnunarinnar.

McCabe sagði að það hefði ekki verið borið undir hann en ef hann hefði verið spurður hefði hann leyft Comey að fljúga heim með vélinni. Eftir stutta þögn í símanum hafi Trump sagt McCabe að „spyrja eiginkonu sína hvernig það væri að vera tapari“.

„Allt í lagi, herra,“ á McCabe að hafa svarað en Trump hafi þá lagt á. Hvíta húsið segir að fregnirnar séu uppspuni frá rótum.

Þá er Trump sagður hafa spurt McCabe á fyrsta fundi þeirra hvern hann hefði kosið í forsetakosningunum og helt sér yfir hann fyrir misheppnaðan stjórnmálaferil eiginkonu hans og áðurnefndan fjárhagslegan stuðning.

Margir ósáttir

Trump hefur fagnað brottrekstri McCabe á Twitter í dag og notað tækifærið til að setja út á Comey, sem er að gefa út bók, í leiðinni. Gagnrýnendur segja brottrekstur McCabe vera lið í áætlun Trump-liða að draga úr trúverðugleika FBI og Mueller.

Nú segja fjölmiðlar að McCabe hafi geymt minnisblöð um fundi sína og Trump. Það gæti mögulega styrkt frásögn hans.

Þá tísti James Comey einnig í dag og sagði að bandaríska þjóðin myndi heyra sögu hans innan bráðar. Þá gætu þau dæmt fyrir sig hver sé heiðursmaður og hver ekki.


Tengdar fréttir

Aðstoðarforstjóri FBI rekinn

Andrew McCabe, aðstoðarforstjóri bandarísku alríkislögreglunnar FBI, var rekinn í gærkvöldi.

Refsa Rússum fyrir afskiptin

Ríkisstjórn Donald Trump hefur staðfest refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna afskipta yfirvalda þar af forsetakosningunum árið 2016 og tölvuárása.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×