Lífið

Atriðið sem féll úr leik í Allir geta dansað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Óskar sem James Bond hitti ekki í mark hjá þjóðinni.
Óskar sem James Bond hitti ekki í mark hjá þjóðinni. vísir/atli
Óskar Jónasson og Telma Rut Sigurðardóttir þurftu að sætta sig við það að vera fyrsta parið sem féll úr leik í skemmtiþættinum Allir geta dansað í gærkvöldi.

Í þætti gærkvöldsins var í fyrsta sinn kosið á milli paranna og hlutu Óskar og Telma minnsta stigafjölda en samanlögð stig dómnefndar og atkvæðafjöldi frá þjóðinni eru lögð saman.

Parið dansaði vals í gærkvöldi og svifu um sviðið undir laginu Skyfall með Adele. Neðst í fréttinni má sjá atriðið frá því í gærkvöldi.

Í þáttunum Allir geta dansað keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×