Hitamál sem varðar ekki síður okkur Íslendinga Magnús Guðmundsson skrifar 22. febrúar 2018 07:00 Kvikmyndin Sami Blood hefur gert það gott á kvikmyndahátíðum víðsvegar um heiminn.
Norræna kvikmyndahátíðin hefst í dag og stendur til þriðjudags. Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir hjá Norræna húsinu bendir á að frítt sé inn á allar myndir á hátíðinni en tryggja þurfi sér miða í tíma. „Hátíðin er búin að vera hérna hjá okkur síðan 2012 og hefur tekið ýmsum breytingum á þeim tíma,“ segir Kristbjörg, sem er markaðs- og kynningarstjóri Norræna hússins. Norræna kvikmyndahátíðin hefur þá sérstöðu að það er frítt á allar sýningarnar en engu að síður þarf fólk að tryggja sér miða í gegnum vefsíðuna tix.is eða á vef Norræna hússins. Allar myndirnar eru sýndar með enskum texta. Kristbjörg segir að þetta sé vissulega til þess að auka á vinsældir hátíðarinnar og að vinsældir hennar fari sífellt vaxandi. „Á meðal þeirra mynda sem við erum með í ár er The Square eftir sænska leikstjórann Ruben Östlund en myndin fékk Gullpálmann í Cannes á síðasta ári og er að auki tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. Þetta er mynd sem hefur verið sýnd í Bíói Paradís og svo er reyndar allt orðið fullt á þessar sýningar hjá okkur og það var fljótt að gerast. Sami Blood, er fyrsta mynd sænska leikstjórans Amanda Kernell, og er mögnuð mynd um samíska stúlku og fordóma sem hún og fólkið hennar þarf að búa við.“Kristbjörg Kona segir að svo verði einnig á hátíðinni stórmyndir á borð við norsku myndirnar Cave og Blind að ógleymdri stórmyndinni Birkebeinerne. „Þá er ekki síður spennandi finnska myndin The Eternal Road sem er byggð á verðlaunaskáldsögu Antti Tuuri og var framleidd í tilefni af 100 ára afmæli Finnlands. Það ætti enginn að láta þessar myndir fram hjá sér fara.“Vinsældir heimildarmynda virðast fara vaxandi með degi hverjum og Kristbjörg Kona segir að hátíðin taki vissulega mið af því. „Á meðal mjög forvitnilegra heimildarmynda er norska myndin Barndom eftir norska leikstjórann Margreth Olin. Þetta er frábær mynd sem fjallar um það hvernig börn leika sér á eigin forsendum en fylgst er með ári í lífi barna á aldrinum 1-7 ára. Miranda – The Making of a Politician eftir sænska leikstjórann Mats Ågren er einnig mjög áhugaverð eins og fjölmargar fleiri.“Kristbjörg Kona segir að það sé um að gera að kynna sér dagskrána á vef Norræna hússins og næla sér í fría miða sem allra fyrst.Vísir/GVAKristbjörg nefnir einnig finnsku myndina Punk Syndrome eftir leikstjórana Jukka Kärkkäinen og J-P Passi. „Þeir segja sögu pönkhljómsveitarinnar Pertti Kurikan Nimipäivät, sem kom fram á Iceland Airwaves 2016 og tók þátt í Eurovision 2015 sællar minningar. En svo er nú bara um að gera að kynna sér dagskrána vel á vef Norræna hússins og drífa í að næla sér í miða sem allra fyrst. Það er fjölmargt skemmtilegt í boði.“ Kristbjörg Kona leggur áherslu á að markmiðið í Norræna húsinu sé að kynna norræna menningu fyrir Íslendingum og að það sé ókeypis. Flóttamaður frá Sýrlandi og kona frá Rauða krossinum taka þátt í umræðum eftir sýningu dönsku heimildarmyndarinnar The Wait eftir leikstjórann Emil Langballe 27. febrúar.„Þetta tekst í langflestum tilfellum og það er ánægjulegt. Það er margt, til að mynda í heimi kvikmyndanna, sem á erindi til okkar enda eigum við margt sameiginlegt. Gott dæmi um það er danska heimildarmyndin The Wait eftir leikstjórann Emil Langballe. Þar er fjallað um það þegar er verið að vísa innflytjendum með fjölskyldur úr landi eftir langa bið sem hefur leitt af sér góða aðlögun barna. Þetta er málefni sem hefur líka verið mikið í umræðunni hér og það ekki að ástæðulausu. Norðurlöndin í Fókus munu standa fyrir umræðum eftir myndina sem verður sýnd kl. 17 þann 27. febrúar. Það kemur flóttamaður frá Sýrlandi og kona frá Rauða krossinum til þess að taka þátt í þeim viðburði. Þetta er hitamál alls staðar á Norðurlöndum og um að gera að koma og fá sýn á það frá öðrum löndum og ræða svo málið í kjölfarið.“
Birtist í Fréttablaðinu Menning Norðurlönd Mest lesið Allt klárt fyrir tilraun við heimsmet í Hlíðarfjalli Lífið Mislukkuð sýning í Borgarleikhúsinu með góðum sprettum Gagnrýni Steggjun endaði á árshátíð RÚV Lífið Flott flutti ódauðlega slagara með Sálinni og Ásgeiri Trausta Lífið Félag Rikka Daða selur einbýli sem áður var í eigu Rikka Daða Lífið Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Tíska og hönnun Myndaveisla: Pattra og Gugusar hressastar í drykkjarpartýi Lífið Frumsýning á Vísi: Segja þjóðinni loksins frá harðræðinu á vistheimilunum Bíó og sjónvarp Hvað ber að hafa í huga þegar hvolpur kemur á heimilið Lífið Vaknaði í angist alla morgna Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Segja þjóðinni loksins frá harðræðinu á vistheimilunum Ljósbrot meðal opnunarmynda í Cannes Hámhorfið: Hvað eru grafískir hönnuðir að horfa á? Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Fylgdi Mari Jaersk á æskuslóðir: „Hann stakk hníf inn í lungun á pabba tvisvar“ Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Bridget Jones 4 kemur út á næsta ári Mun túlka Springsteen Finna enn gríðarlega sterk áhrif Eurovision-myndarinnar Verður aftur laglega ljóskan Elle Woods Svar Íslands og Sviss við Forrest Gump mætir á skjáinn Hámhorfið: Hvað eru prestar landsins að horfa á? Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 „Hann er með svona Connery áru yfir sér“ Spennuþáttaröðin Reykjavík Fusion í framleiðslu í sumar Báðar fylkingar House of the Dragon fá sína stiklu Bað hennar við sólsetrið á 100 mánaða afmælinu Nýir Star Wars þættir líta dagsins ljós Sagður vera næsti James Bond Sá Dune tvö hundruð sinnum og er búinn að fara nítján sinnum á Dune 2 í bíó Hámhorfið: Hvað eru listakonur landsins að horfa á? Heimaleikurinn með enn önnur verðlaunin í Glasgow Spáir í spilin: „Alveg eins hægt að afhenda Nolan styttuna nú þegar“ Sjá meira