Innlent

Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Bíl var ekið á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi fyrr í dag.
Bíl var ekið á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi fyrr í dag. Vísir/Pjetur
Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi, rétt við Hamraborg í Kópavogi, á þriðja tímanum í dag. Áreksturinn var nokkuð harkalegur að sögn varðstjóra Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu en ljósastaurinn sem ekið var á féll við höggið.

Ekki er vitað um alvarleika meiðsla þessara þriggja sem voru fluttir á sjúkrahús. Sendir voru einn slökkvibíll og þrír sjúkrabílar á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×