Fótbolti

Wolfsburg heldur áfram að vinna

Sara í leik með Wolfsburg.
Sara í leik með Wolfsburg. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur í þýska liðinu Wolfsburg styrktu stöðu sína á toppi Bundesligunnar með sigri á Sand í dag.

Hin danska Pernille Harder kom Wolfsburg yfir á 38. mínútu og Zsanett Jakabfi frá Ungverjalandi tvöfaldaði forystuna á 81. mínútu.

Eftir rúman klukkutíma leik fékk Diane Caldwell í liði Sand að líta tvö gul spjöld með stuttu millibili og var rekin snemma í sturtu.

Sara Björk var á sínum stað í byrjunarliði Wolfsburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×