Golf

Valdís meiddist í bakinu daginn fyrir mót en hafnaði í þriðja sæti

Anton Ingi Leifsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnugolfari, glímdi við erfið meiðsli í bakinu daginn áður en hún byrjaði á móti í Ástralíu þar sem hún fór á kostum. Valdís var við keppni á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu um helgina og endaði í þriðja sæti.

„Völlurinn var frekar erfiður eins og sást á skorinu. Það var mikið af háu skori og niðurskurðurinn frekar hátt miðað við þáttakendurna sem voru með,” sagði Valdís Þóra í samtali við Hjört Hjartarson í Akraborginni.

„Aðstæðurnar voru mjög góðar fyrstu tvo dagana, svo byrjaði aðeins að rigna þriðja daginn og svo kom þessi fínur stormur á okkur síðasta daginn sem olli fjögurra tíma frestun.”

Valdís segir að hún hafi verið í vandræðum með meiðsli í baki daginn fyrir mótið og svo slæm voru þau að hún gat ekki sveiflað kylfunni eðlilega degi fyrir mót.

„Ég er mjög sátt. Ég er búinn að vera spila mjög vel í tvær vikur fyrir þetta mót og vissi að ég gæti komið með góð skor. Svo meiddist ég aðeins í bakinu daginn fyrir mót og gat ekki sveiflað daginn fyrir mót. Ég er sátt við mína frammistöðu og ná að spila alla fjóra hringina svona vel.”

„Þau voru ekki þægileg þessi meiðsli, en ég fékk vöðva spasma í bakið og sjúkraþjálfarinn kippti mér inn í hádegishléinu daginn fyrir mótið. Síðan var ég tíður gestur hjá honum fyrir hringina að mýkja áður en ég færi út.”

Var Valdís einhverntímann nálægt því að ógna efstu sætunum?

„Já, vissulega. Sérstaklega síðasta hringinn þá var ég að spila mjög vel og var að koma mér í svakalega mikið af færum. Ég hefði viljað sjá aðeins fleiri pútt detta, en þetta gekk mjög vel. Maður veit aldrei hvað hefði gerst ef allt hefði rúllað í.”

Allt innslagið úr Akraborginni má heyra efst í fréttinni þar sem Valdís ræðir enn meira um hringinn, hvað sé framundan og fleira til.


Tengdar fréttir

Valdís Þóra: Mjög stolt af spilamennskunni um helgina

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr GL, lauk leik í 3. sæti á Austr­alian Ladies Classic í Bonville á sjö höggum undir pari um helgina en þetta er í annað skiptið á nokkrum mánuðum sem Valdís tekur þriðja sætið á LET-mótaröðinni, þeirri næststerkustu í heiminum.

Valdís Þóra: Nóg af fuglum eftir

Valdís Þóra Jónsdóttir er í toppbaráttunni á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu sem er hluti af Evrópumótaröðinni.

Valdís Þóra upp um 70 sæti á heimslistanum

Valdís Þóra Jónsdóttir stökk upp um 70 sæti á heimslistanum í golfi eftir frábæra spilamennsku á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu um helgina.

Ólafía jafnaði besta hring mótsins │ Valdís Þóra í þriðja sæti

Íslensku kylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir áttu frábæran dag í Ástralíu í nótt. Valdís er í toppbaráttunni á Ladies Classic Bonville mótinu og Ólafía Þórunn lék á fimm höggum undir pari sem er besta skor mótsins til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×