Sport

Lykill að velgengni Norðmanna á ÓL: „Engir skíthælar leyfðir“

Það var gaman hjá Norðmönnum á ÓL. Hér er sú sigursælasta í sögunni, Marit Björgen,  borin á hástól eftir að hún landaði gulli í síðustu grein leikanna.
Það var gaman hjá Norðmönnum á ÓL. Hér er sú sigursælasta í sögunni, Marit Björgen, borin á hástól eftir að hún landaði gulli í síðustu grein leikanna. Vísir/Getty
Ef þú ert leiðinlegur eða með einhverja stjörnustæla þá er ekki pláss fyrir þig í hópi afreksfólks Norðmanna. Þetta segir einn besti skíðamaður norsku þjóðarinnar og verðlaunahafi á Ólympíuleikunnm í Pyeongchang.

Norðmenn áttu frábæra Ólympíuleika þar sem þeir unnu 39 verðlaun þar af fjórtán gullverðlaun. Aldrei áður hefur ein þjóð unnið jafnmörg verðlaun á einum leikum. Þetta er í fyrsta sinn í sextán ár þar sem Norðurmenn vinna flest gullverðlaun á leikunum en þeir unnu þrettán gull í Salt Lake City 2002.

39 verðlaun Norðmanna skiptust þannig: 14 í skíðagöngu (7 gull, 4 silfur, 3 brons), 7 í alpagreinum (1 gull, 4 silfur, 2 brons), 6 í skíðaskotfimi (1 gull, 3 silfur, 2 brons), 5 í skíðastökki (2 gull, 1 silfur, 2 brons), 4 í skautahlaupi (2 gull, 1 silfur, 1 brons), 1 gull í skíðafimi, 1 silfur í norrænni tvíkeppni og 1 brons í krullu.

Norðmenn leggja til tæpa tvo milljarða íslenskra króna til íþróttafólks síns á ári hverju sem er minna en helmingur af því sem vetrarólympíuleikarnir kostuðu sem dæmi skattborgara Bretlands. BBC segir frá þessu og forvitnaðist aðeins meira um afrek Norðmanna í Pyeongchang.





Samkvæmt frétt BBC þá fær norska íþróttafólkið ekki verðlaunafé eða bónusa fyrir að vinna verðlaun á Ólympíuleikum en hluti þeirra vinnur fyrir sér sem píparar, smiðir og kennarar eins og segir í greininni.

Íþróttafólkið hefur þó fengið sérstaka gullskó fyrir að komast á verðlaunapallinn en þessir skór kláruðust í Pyeongchang. Norðmenn voru eiginlega að vinna of mörg verðlaun þótt enginn sé að kvarta á þeim bænum.

Í frétt BBC kemur fram að skíðafólkið æfir saman í 250 daga á ári, þau spila saman og halda sameiginleg taco kvöld. Kjetil Jansrud sem vann brons í stórsvigi á ÓL 2018 sagði blaðmanni BBC að „engir skíthælar“ væru leyfðir í liðinu. Það væri lykilatriði í því að búa til góðan liðsanda.





Tore Ovrebo, yfirmaður Ólympíuliðs Norðmanna, fagnar snjónum heima í Noregi og segir hann lykilinn að árangrinum. Þetta snúist samt alltaf um að hafa gaman af öllu saman.

„Verðlaunalistinn er eitt en hann skiptir ekki öllu. Mikilvægast er að við höfðum gaman allan tímann og það að við séum öll vinir og að við verðum áfram öll vinir,“ sagði Tore Ovrebo.





Norðmenn og sæti á verðlaunalistanum á þessari öld:

ÓL 2018: 1. sæti (39 verðlaun - 14-14-11)

ÓL 2014: 2. sæti (26 verðlaun - 11-5-10)

ÓL 2010: 4. sæti (23 verðlaun - 9-8-6)

ÓL 2006: 13. sæti (19 verðlaun - 2-8-9)

ÓL 2002: 1. sæti (25 verðlaun - 13-5-7)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×