Glamour

Guðdómlegir silkisamfestingar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tískuhúsið Bottega Veneta sýndi línu sínu fyrir herra og dömur á tiskuvikunni í New York í vikunni. Þar var ein flík sem vakti athygli okkar en það var samfestingur í silkí í dásamlegu víðu sniði. Smá náttfatarstemming yfir flíkinni. 

Samfestingar eru ekkert á leiðinni út af tískuradarnum á næstunni og þessi frá Bottega Veneta fer efst á óskalistann. Þá var líka að finna einn fallegan úr ljósu velúrefni og svo tvískipt buxnadragt úr silki. Allt í fallegum brenndum litatónum. 

Þessar flíkur mega gjarna bætast inn í fataskáp okkar ekki seinna en í gær!






×