Erlent

Segja aðildarríki NATO enn verja of litlu til varnarmála

Samúel Karl Ólason skrifar
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, James Mattis og aðrir varnarmálaráðherrar NATO.
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, James Mattis og aðrir varnarmálaráðherrar NATO. Vísir/AFP
James Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, NATO, enn verja of litlu til varnarmála og þar þyrfti að bæta úr. Hann sagði varnarmálaráðherrum NATO að þeir ættu að fylgja fordæmi Bandaríkjanna, en Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lagði nýverið til að fjárframlög til aðgerða ríkisins í Evrópu yrðu aukin um þrjátíu prósent.

Þetta hefur Reuters fréttaveitan eftir heimildarmönnum sínum innan NATO. Þeir sögðu Mattis hafa minnt þá á ummæli Trump um að NATO-ríki yrðu að standa við skuldbindingar sínar ellegar eiga á hættu að missa stuðning Bandaríkjanna.



Varnarmálaráðherra NATO funduðu í Brussel í dag um áætlanir aðildarríkja um hvernig þau ætla að leggja þau tvö prósent af vergri framleiðslu til varnarmála, sem þeim ber að gera samkomulagi sem samþykkt var á leiðtogafundi NATO árið 2014, og gera það fyrir árið 2024.

Fimmtán af 28 ríkjum NATO hafa lagt fram áætlanir um hvernig því markmiði verði náð og verður farið yfir þær á leiðtogafundi NATO í sumar.

Spánverjar hafa gefið út að þeir muni ekki vera komnir upp í tvö prósent árið 2024. Belgía, Lúxemborg, Ítalía, Portúgal, Noregur og Danmörk eru einnig á eftir áætlun og reiknað er með að Ungverjaland verði komið upp í tvö prósent árið 2026.

Bretland, Grikkland, Rúmenía og Eystrasaltsríkin verja þegar umræddum tveimur prósentum, eða nálægt því, til varnarmála og búist er við því að Frakkland og Tyrkland nái þeim áfanga á næstu árum.

Einhverjir embættismenn sögðu á fundinum að taka þyrfti tillit til þess að ríki eins og Ítalí og Þýskaland væru þegar að leggja mikið til verkefna NATO eins og í Afganistan.

„Þetta er ekki bara um hráar tölur. Þetta er einnig spurning um hver er að gera hvað,“ sagði Ursula von der Leyen, varnarmálaráðherra Þýskalands.

Mattis var þó staðfastur á því að öll ríki NATO þyrftu að standa við skuldbindingar sínar.


Tengdar fréttir

Trump vill að bandamenn sínir borgi

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tjáði aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins á fundi í dag að þau þyrftu að borga sinn skerf af framlögum til varnarmála. Hann talaði einnig um hryðjuverkaógnina.

Trump skaut á leiðtoga annarra NATO-ríkja

Bandaríkjaforseti vill aukin framlög aðildarríkja NATO til varnarmála. 23 ríki verja minna í varnarmál en miðað er við. NATO framtíðarinnar þyrfti að einbeita sér að hryðjuverkum. Bretar ósáttir við Bandaríkjamenn vegna leka um ranns




Fleiri fréttir

Sjá meira


×