Viðskipti innlent

Sigríður tekur við af reynsluboltanum Andrési

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigríður lét af störfum sem mannvitsstjóri Mannvits á síðasta ári.
Sigríður lét af störfum sem mannvitsstjóri Mannvits á síðasta ári.
Sigríður Indriðadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Íslandspósts. Sigríður tekur við stöðunni af Andrési Magnússyni sem lét nýverið af störfum eftir áratuga starf hjá Íslandspósti og þar áður hjá Pósti og síma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti.

Sigríður hefur víðtæka reynslu af mannauðsmálum og hefur starfað sem mannauðsstjóri um margra ára skeið, fyrst hjá Mosfellsbæ og síðar hjá Mannviti. Þá hefur hún starfað við mannauðsráðgjöf hjá Reykjavíkurborg og grunnskólakennslu á Akranesi. Einnig hefur Sigríður starfað við þjálfun í mannlegum samskiptum hjá Dale Carnegie og nú síðast við stjórnendaþjálfun hjá Strategic Leadership. 

Sigríður er með B.Ed gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og M.SSc gráðu í mannauðs- og menntunarfræðum frá Háskólanum í Lundi, auk þess sem hún útskrifast úr markþjálfunarnámi frá Háskólanum í Reykjavík í vor. 

„Ég hlakka mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni hjá Íslandspósti og kynnast því góða fólki sem þar starfar. Íslandspóstur er stórt og rótgróið fyrirtæki með marga starfsmenn. Það er því mikið verkefni að taka við þessu starfi og hef ég afar góða tilfinningu fyrir því að koma til starfa á þessum fjölbreytta og áhugaverða vinnustað,“ segir Sigríður í tilkynningu.

„Það er okkur mikil ánægja að fá reynslumikinn og áhugasaman starfskraft til liðs við okkar öfluga starfsmannahóp og hlökkum við til ánægjulegs og árangursíks samstarfs. Menntun og reynsla Sigríðar kemur sér vel í því ábyrgðarmikla starfi sem hún tekur við hjá okkur og væntum við góðs af því  að takast á við komandi verkefni með henni,“ er haft eftir Ingimundi Sigurpálssyni, forstjóra Íslandspósts, í tilkynningunni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×