Innlent

Rakst utan í vegg í Hvalfjarðargöngum

Atli Ísleifsson skrifar
Einhverjar tafir urðu á umferð vegna slyssins.
Einhverjar tafir urðu á umferð vegna slyssins. Gísli Reynisson
Einhverjar tafir urðu á umferð þegar bíl var ekið utan í vegg í Hvalfjarðargöngum skömmu eftir hádegi í dag.

Að sögn Ómars Smára Ármannssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns var bíllinn á leiðinni til Reykjavíkur þegar slysið varð. Tilkynning hafi borist lögreglu klukkan 12:45 og að talsvert tjón hafi verið á bílnum.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sjúkrabíll ekki sendur á vettvang vegna slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×