Glamour

Skemmtir sér á skíðum með Björgólfi Thor

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Breski leikstjórinn Guy Ritchie er eins og margir að skemmta sér á skíðum þessa dagana en hann birti mynd af sér rétt í þessu með íslenska athafnamanninum Björgólfi Thor úr skíðabrekkunni þar sem hann segir í myndatexta að hann sér bróðir hans frá annarri móðir, eða orðatiltæki sem þekkist betur á ensku sem “brother from another mother.“

Ritchie er góðvinur David Beckham og nokkuð víst að þeir Björgólfur þekkist í gegnum fótboltaleikmanninn fræga. Hann er einn af þekktari leikstjórum Breta en var líka giftur Madonnu um tíma en þau skildu árið 2008. 

Björgólfur kommentar einmitt undir myndina þar sem hann þakkar Ritchie fyrir 12 tíma skíðagleði. 

Hann hefur leikstýrt myndum á borð við Lock, Stock and Two Smoking Barrels (1998), Snatch (2000), Revolver (2005), RocknRolla (2008), Sherlock Holmes (2009) og Sherlock Holmes: A Game of Shadows (2011).

Það er nokkuð víst að þeir félagarnir eru ekki að renna sér niður brekkurnar í Bláfjöllum en aldrei að vita ... 






×