Enski boltinn

Leicester og Chelsea mætast í 8-liða úrslitum | Drátturinn í heild

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Conte og félagar heimsækja Leicester
Conte og félagar heimsækja Leicester vísir/getty
Búið er að draga í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar þó 16-liða úrslitunum sé ekki lokið.

Englandsmeistarar síðustu tveggja ára drógust saman því Chelsa mun heimsækja Leicester í 8-liða úrslitunum. Manchester United verður einnig í úrvalsdeildarslag því Brighton mun heimsækja Old Trafford.

Takist Man City að leggja Wigan að velli bíður Southampton í 8-liða úrslitunum.

8-liða úrslitin fara fram dagana 16.-19.mars næstkomandi.



8-liða úrslit enska bikarsins



Swansea eða Sheffield Wednesday - Rochdale eða Tottenham

Man Utd - Brighton

Leicester - Chelsea

Wigan eða Man City - Southampton




Fleiri fréttir

Sjá meira


×