Sport

Mayweather heldur áfram að stríða bardagaþyrstum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Floyd Mayweather.
Floyd Mayweather. Vísir/Getty
Floyd Mayweather virðist vera tilbúinn að berjast í MMA-bardaga og nýtir samfélagsmiðla til þess að skora á menn að setja saman nógu góðan pakka svo hann komi í íþróttina.

Í gær birti hann myndband af sér að labba inn í MMA-búr. Skoða landslagið og gefa því undir fótinn að hann vilji eftir allt saman taka þátt í fjörinu þar.





Í myndbandi dagsins er Mayweather inn í búrinu og spyr hverjar líkurnar séu á því að hann verði í MMA árið 2018?

Menn túlka þetta sem ákall til þeirra sem ráða að fara að safna peningum svo það sé hægt að fá Mayweather í MMA-bardaga. Þessi síðustu skref Mayweather munu líklega setja allt á fullt með að fá hann inn í búrið.

Svo má reyndar vera að þetta sé allt úthugsuð auglýsingaherferð fyrir Paddy Power en hann talar um Paddy og er í stuttbuxunum þeirra á klippunni. Verður að gefa Mayweather að hann fær fólk til þess að spá í hlutunum.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×