Innlent

Vigdís leiðir Miðflokkinn í borginni

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Vigdís snýr aftur í stjórnmálin.
Vigdís snýr aftur í stjórnmálin. Vísir/Ernir
Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingkona Framsóknarflokksins, mun leiða lista Miðflokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Þetta var tilkynnt í opnunarteiti skrifstofu Miðflokksins í kvöld.

Lokafrestur til að skila inn öðrum framboðum er þó til klukkan 12 laugardaginn 17. febrúar næstkomandi. Þann 24. febrúar mun stjórn Miðflokksins í Reykjavík kynna sex efstu frambjóðendur á framboðslistanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×