Handbolti

Spánn burstaði Makedóníu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Makedónía átti engin svör
Makedónía átti engin svör vísir/getty
Síðari leikur dagsins á EM í Króatíu var langt því frá að vera nokkurn tímann spennandi þar sem Spánverjar tóku Makedóníu í kennslustund og unnu öruggan ellefu marka sigur.

Snemma var ljóst í hvað stefndi því Spánverjar voru komnir í 5-1 á fyrstu mínútum leiksins. Spánverjar voru miklu betri frá upphafi til enda og unnu að lokum þægilegan sigur, 20-31.

Eduardo Gurbindo var markahæstur í liði Spánverja með sex mörk en Gonzalo Vargas, markvörður Spánverja var maður leiksins með átján varin skot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×