Innlent

Grunaður um áralöng brot gegn pilti

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Karlmaður var á föstudag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, grunaður um kynferðisbrot gegn pilti.
Karlmaður var á föstudag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, grunaður um kynferðisbrot gegn pilti. vísir/gva
Karlmaður á fimmtugsaldri var á föstudag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meintum kynferðisbrotum hans gegn ungum pilti. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eiga brot mannsins að hafa staðið yfir um nokkurra ára skeið, fyrir nokkrum árum, þegar pilturinn var á barnsaldri og unglingur.

Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að maður hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn máls en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið sem væri á viðkvæmu stigi.



Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fréttablaðið/Anton Brink
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins barst lögreglu kæra á hendur manninum í síðustu viku en ungi maðurinn sem kærði er nú um tvítugt. Heimildir herma að hin meintu brot hafi átt sér stað um nokkurra ára skeið.

Samkvæmt heimildum var maðurinn handtekinn í síðustu viku og gerð húsleit á heimili hans í tengslum við rannsókn málsins. Á föstudag var hann síðan úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald.

Á föstudag var gæsluvarðhald yfir manni á sextugsaldri í öðru máli framlengt um fjórar vikur. Sá er grunaður um að hafa brotið gegn sautján ára pilti um nokkurt skeið og hugsanlega fleiri börnum, líkt og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 á föstudag.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að óvenju mikill fjöldi kynferðisbrota gegn börnum væri nú til rannsóknar hjá lögreglu, eða tuttugu og níu mál. Frá miðju síðasta ári og fyrstu vikum þessa árs hefur málum fjölgað frá 11 á viku upp í 29 á viku. Grímur vildi í Fréttablaðinu í gær fara varlega í að túlka tölfræðina um of en að ekki væri hægt að útiloka að umræðan í kringum #metoo-byltinguna hefði eitthvað með fjölgunina að gera. Öll umræða auki vitund fólks og gæti þannig tengst þessari fjölgun mála á borði lögreglu.

Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í gær er lögreglan að taka kynferðisbrot gegn börnum föstum tökum. Starfsmenn embættisins hlutu nýverið sérstaka þjálfun til að takast á við og greina stafrænt ofbeldi gegn börnum sem færst hefur í vöxt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×