Glamour

Yfirhafnir mikilvægastar í París

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Hátískuvikan stendur nú yfir í París og af götustílnum af dæma þá virðist vera ansi kalt. Það hentar vel fyrir okkur Íslendinga, því okkur vantar smá innblástur þessa dagana.

Áherslan er lögð á yfirhafnirnar í París, þar sem oftar er þynnri jakki notaður undir kápu. Stuttir leðurjakkar, stórir mokkajakkar og síðar kápur eru mjög áberandi, og fólk notar ímyndunaraflið þegar kemur að litum og mynstri. 

Fáðu smá innblástur í þessum janúarmánuði, og skelltu þér í nokkra jakka í einu. Það er góð hugmynd í kuldanum. 






×