Innlent

Skora á stjórnvöld að efla innviði flugvalla á landsbyggðinni

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Akureyrarflugvöllur.
Akureyrarflugvöllur. Mynd/Kristján Kristjánsson
Samtök ferðaþjónustunnar hafa gefið frá sér yfirlýsingu þar sem þau skora á stjórnvöld að treysta innviði flugvalla á landsbyggðinni. Slíkt er, að mati samtakanna, forsenda fyrir því að uppbygging ferðaþjónustu geti haldið áfram í öllum landshlutum.

Akureyrarflugvöllur ræður ekki við millilandaflug

SAF segir meðal annars í ályktun sinni að nauðsynlegt sé að bæta Akureyrarflugvöll ef millilandaflug á að vera raunhæfur kostur. Fyrr í mánuðinum hóf bresk ferðaskrifstofa flug milli nokkurra borga í Englandi til Akureyrar.

Að mati SAF er millilandaflugið lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi en merkja má 15 til 20 prósenta veltuaukningu í ferðaþjónustu í landshlutanum frá því á sama tíma á síðasta ári. Hins vegar hefur millilandaflugið ekki gengið áfallalaust fyrir sig.

„Nú er svo komið að í tvígang hafa flugvélar þurft að snúa frá Akureyrarflugvelli þar sem völlurinn er ekki þeim tækjum búinn sem millilandaflug krefst. Það er ólíðandi að millilandaflugi til og frá Akureyri, sem unnið hefur verið markvisst að á vettvangi ferðaþjónustunnar og stjórnvalda sé stefnt í voða með þessum hætti,“ segir í yfirlýsingunni og að auki minnir SAF á mikilvægi Akureyrarflugvallar sem varaflugvallar fyrir millilandaflug.

 

Frá Ísafjarðarflugvelli. Fréttablaðið/GVA
Ekki nóg að sinna bara Keflavíkurflugvelli

Í yfirlýsingunni benda Samtök ferðaþjónustunnar á að til þess að tryggja öryggi ferðafólks sé nauðsynlegt að huga að innviðum.

„Öruggar samgöngur, hvort heldur sem er á landi eða lofti, skipta miklu máli þegar kemur að því að dreifa ferðamönnum betur um landið okkar. Á það sérstaklega við yfir vetrarmánuðina þegar ferðaþjónusta á landsbyggðinni á undir högg að sækja.“

SAF telja að til þess að sinna lágmarksviðhaldi á þeim þrettán flugvöllum, fyrir utan Keflavíkurflugvöll, sem notaðir eru fyrir innanlandsflug, vanti um 400 milljónir króna samkvæmt nýsamþykktum fjárlögum.

„Við óbreytt ástand verður ekki unað, enda óásættanlegt fyrir ferðamenn, innlenda jafnt sem erlenda, að flugsamgöngum sé ógnað með þessum hætti og kerfinu leyft að grotna niður.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×