Innlent

Rekinn eftir áreitni og ráðinn hjá öðru félagi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Fyrrverandi handboltakona sem var áreitt kynferðislega af þjálfara sínum er óánægð með framgöngu HSÍ í málinu. Þjálfarinn var rekinn eftir að upp komst um brot gegn annarri konu en var síðar ráðinn hjá öðru liði.

Bryndís Bjarnadóttir spilaði handbolta með Val til fjölda ára en þegar hún var fimmtán ára gömul kom reyndur þjálfari inn í hópinn og hóf að spjalla við hana í gegnum netið.

„Hann vildi vera vinur minn og vann sér inn traust hjá mér. Nema að þessi maður var 15 árum eldri en ég og þjálfari minn. Alltaf gekk þetta lengra og lengra þar til það var orðið kynferðislegt. Hann var farinn að segja mér hvað ég ætti að gera við sjálfa mig og hvernig hann myndi vilja að við værum saman kynferðislega," segir Bryndís.

Hún segir handboltann hafa verið ómissandi þátt af lífinu og því hafi hún látið á engu bera.  „Mér fannst skárra að eiga þessi samtöl við hann, segja það sem ég hélt að hann myndi vilja heyra en gráta síðan fyrir framan tölvuna og mæta á æfingar eins og ekkert væri. Hann var sá sem réði því hvort ég myndi spila eða ekki," segir Bryndís.

Segir stjórnarmeðlim vita af áreitninni

Þegar önnur stelpa sagði frá áreitni þjálfarans töluverðu síðar steig Bryndís einnig fram. Hann var þá rekinn frá Val en leitaði til annarra félaga. Nokkur félög höfnuðu honum áður en hann fékk inn hjá öðru.

„Ég veit það fyrir víst að félag, eða meðlimur í stjórninni veit af þessu, eða að minnsta kosti vissi þegar þau réðu hann. Og þau gerðu það samt," segir hún.

Þegar Bryndís sneri seinna til starfa hjá Val upplifði hún að málinu væri tekið létt hjá mörgum innan félagsins.

„Þá fékk ég stundum nafnlausar símhringingar frá strákum í félaginu þar sem þeir gerðu grín af atvikinu og voru að þykjast vera þjálfarinn minn," segir Bryndís.

Boðið til Katar af HSÍ

HSÍ var látið vita af málunum og vildi fjölskylda Bryndísar að manninum yrði bannað að starfa innan hreyfingarinnar. Við því var ekki brugðist og þá meðal annars vegna skorts á sönnunum og vísað var til þess að hann væri einungis í sjálfboðaliðastarfi á þeim tíma.

„Það var sagt að hann myndi ekki koma nálægt yngri landsliðum lengur, ekki fara í keppnisferðir með stelpum. Þangað til ég sé hann allt í einu á HM í Katar og frétti að honum hefði verið boðið þangað af HSÍ. Af því hann hafði staðið sig svo vel fyrir það sérsamband," segir Bryndís.

Hún telur að taka þurfi mun betur á svona málum þannig að treysta megi á öruggt umhverfi innan íþróttafélaga. Líkt og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær hefur verið stofnaður starfshópur sem á að vinna að aðgerðaráætlun vegna kynbundins ofbeldis og áreitis innan íþrótta. 

„Það að koma fram á ekki að þýða að þolandinn eigi á hættu að það bitni á honum," segir Bryndís.


Tengdar fréttir

Yfirlýsing frá ÍSÍ: Ofbeldi verður ekki liðið!

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfarið á því að íþróttakonur á Íslandi sendu frá sér yfirlýsingu í tengslum við MeToo umræðuna.

Frásögn Hólmfríðar orðin að fréttamáli í Noregi

Íslenska landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir staðfesti í gær að hún ætti eina af frásögnuum 62 sem birtust þegar íþróttakonur á Íslandi sendu frá sér yfirlýsingu í tengslum við MeToo umræðuna.

Boða aðgerðir vegna áreitni og ofbeldis í íþróttum

Mennta- og menningarmálaráðherra ætlar að skipa starfshóp sem mun vinna aðgerðaráætlun vegna kynferðislegrar áreitni og brota innan íþróttahreyfingarinnar. Fyrrverandi framkvæmdastjóri íþróttafélaga segir nauðsynlegt að viðbrögð félaga við þessum málum séu samræmd.

Fimm reknir frá KR

Fimm menn hafa verið látnir fara frá KR undanfarin ár vegna ósæmilegrar framkomu. Alvarlegustu dæmin sem íþróttakonur nefna um kynferðislegt ofbeldi eru mál sem eiga heima hjá lögreglu, segir formaður FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×