Innlent

Opnað fyrir umferð á Þrengslavegi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. Vísir
Þrengslavegi hefur verið lokað vegna umferðaróhapps en ekki eru alvarleg slys á fólki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Vegna færðar og skyggnis hefur veginum verið lokað til að tryggja öryggi viðbragðsaðila á vettvangi. Þá er ekki búist við að lokunin vari lengi.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni, sem send var út á níunda tímanum í kvöld, segir að mikill éljagangur hafi verið á Suður- og Suðausturlandi í dag og því víða nokkur hálka og hálkublettir.

Uppfært klukkan 21:48:

Lokun hefur verið aflétt um Þrengslaveg. Slabb er á veginum, hált og skafrenningur og eru vegfarendur því beðnir um að aka með gát og stilla ökuhraða í hóf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×