Fótbolti

Messi klúðraði víti í tapi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi niðurlútur í kvöld.
Messi niðurlútur í kvöld. vísir/getty
Lionel Messi klúðraði vítaspyrnu þegar Barcelona tapaði fyrir Espanyol í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum spænska konungsbikarsins.

Staðan var markalaus í hálfleik, en á 61. mínútu fiskaði Sergi Roberto vítaspyrnu. Messi fór á punktinn, en Diego Lopez varði frá honum.

Það var svo Oscar Melendo sem tryggði Espanyol sigurinn tveimur mínútum fyrir leikslok fyrir framan 23323 áhorfendur á RDCE-leikvanginum.

Liðin mætast aftur eftir rúma viku á Nývangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×