Lífið

Hélt uppá jólin í fimm hundruð þúsund króna yfirhöfn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Elton í slánni frægu.
Elton í slánni frægu. Vísir / Skjáskot af Twitter
Tónlistarmaðurinn Elton John fór í sitt fínasta púss um jólin eins og flestir. Á öðrum degi jóla ákvað hann að skella sér í forláta tígra slá frá Gucci, en vorlína tískumerkisins er innblásin af téðum tónlistarmanni.

Sláin góða er langt frá því að vera ókeypis og kostar rúmlega 4600 dollara, eða tæplega fimm hundruð þúsund krónur.

Elton fagnaði jólunum í Aspen í Colorado með eiginmanni sínum David Furnish og sonum sínum tveimur, Zachary, sjö ára, og Elijah, fjögurra ára.

Það hafa skipst á skin og skúrir í lífi Eltons á árinu sem er að líða. Söngleikurinn The Lion King fagnaði tuttugu ára afmæli á árinu, en Elton samdi alla tónlist í verkinu. Síðan gaf hann út safnplötu með öllum af sínum bestu lögum sem sló í gegn.

Hann þurfti hins vegar einnig að kljást við skyndilegan móðurmissi, en móðir hans, Sheila Farebrother, lést stuttu eftir að þau sættust en þau höfðu verið ósátt í nærri áratug. Ástæða ósættisins var sögð vera vegna símtals á milli þeirra Sheilu og Eltons í júní árið 2008 þar sem tónlistarmaðurinn krafðist þess að móðir sín myndi slíta vinskap við vini sína Bob Halley og John Reid. Bob og John höfðu þá verið reknir úr starfsliði Eltons en móðir hans þverneitaði að hætta að tala við þá.

Þá verður einnig nóg að gera hjá Elton árið 2018 en þann 30. janúar verða teknir upp sérstakir tónleikar honum til heiðurs, Elton John: I’m Still Standing - A Grammy Salute. Elton mun sjálfur troða upp á tónleikunum ásamt tónlistarmönnum á borð við Miley Cyrus, Sam Smith, John Legend og Chris Martin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×