Glamour

Vínrauðar partývarir sem stela senunni

Kynning skrifar
Glamour í samstarfi við Rimmel sýnir hér glæsilega förðun sem í nokkrum einföldum skrefum hægt hægt að leika eftir. Vínrauðar og mattar varir sem stela senunni. 

Þessi förðun hentar einstaklega vel þeim sem kjósa mattar varir.  

Áhersla er lögð á mattar, vínrauðar varir. Húðin fær mildan ljóma og meðal þekju, í lokinn er svo spreyjað yfir andlitið með Fix and Go sem gerir það að verkum að förðunin helst út kvöldið.

Kremaður augnblýantur er borinn á augnlok og meðfram neðri augnhárum sem grunnur fyrir augnskugga.

Brúnir sanseraðir augnskuggar eru því næst bornir á með blöndunarbursta fyrir milt útlit sem gefur aukna skerpu en stelur þó ekki athyglinni af vörunum.

Hér má sjá Glamour með Hörpu Kára í fararbroddi leika förðunina eftir í myndbandi sem fylgjendur okkar á Instagram fengu beint í æði í vikunni. Einfalt og þægilegt - njótið!

Myndbandið var tekið upp á Samsung Galaxy S8+. 






×