Körfubolti

Borgaði 5,7 milljónir fyrir gamla skó af Michael Jordan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Jordan.
Michael Jordan. Vísir/Getty
Dýrstu Air Jordan skórnir eru fundir. Þeir eru reyndar notaðir og meira en 30 ára gamlir en skórnir umræddu seldust fyrir metfé á uppboði hjá Heritage.

Skór sem Michael Jordan spilaði í þegar hann kom aftur til baka eftir meiðsli 1985-86 tímabilið seldust fyrir 55 þúsund dollara eða 5,7 milljónir íslenskra króna. Aldrei áður hefur verið borgað svo mikið fyrir skó úr Air Jordan I línunni.



Skórnir voru sérstaklega styrktir í kringum ökklann en Jordan var þarna að koma til baka eftir að hafa fótbrotnað í þriðja leik tímabilsins.

Jordan missti af 64 leikjum á 1985-86 tímabilinu en spilaði fyrsta leikinn eftir meiðslin 15, mars 1986 á móti Milwaukee Bucks. Chicago Bulls tapaði þeim leik með 9 stigum en Jordan var með 12 stig á 13 mínútum.

Jordan spilaði einn frægasta leikinn sinn þetta tímabil eða þegar hann skoraði 63 stig í leik í úrslitakeppninni á móti Boston Celtics í Boston Garden. Chicago Bulls tapaði þar fyrir verðandi meisturum Boston Celtics en eftir leikinn talaði Larry Bird um að þetta hafi verið guð dulbúinn sem Michael Jordan.

Jordan skoraði 49 stig í fyrsta leiknum, 63 stig í öðrum leiknum og 19 stig í þriðja leiknum þar sem hann var einnig með 10 fráköst og 9 stoðsendingar. Boston Celtics vann hinsvegar alla þrjá leikina.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×