Sport

Hestur fer í mál við Ray Lewis

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ray Lewis.
Ray Lewis. vísir/getty
Ekki er öll vitleysan eins í Bandaríkjunum og núna er hestur farinn í mál við Ray Lewis, fyrrum ofurstjörnu úr NFL-deildinni.

Lewis framleiðir viskí sem heitir Ray's Reserve og það fyrirtæki fór í samstarf við hestinn California Chrome sem vann meðal annars Kentucky Derby-hlaupið árið 2014.

Fyrirtæki Lewis átti að greiða 25 þúsund dollara, 2,6 milljónir króna, fyrir auglýsinguna og einnig átti hann að afhenda eigendum hestsins viskí sem væri 2,6 milljóna króna virði.

Hvorugt skilaði sér þó svo knapi hestsins hafi auglýst vínið hans Lewis. Lewis hefur unnið marga sigra í gegnum tíðina en hvort þessi hestur sé ofjarl hans á eftir að koma í ljós.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×