Viðskipti innlent

Staðgreiða lúxusbíla á metári

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Bilaumboðin hafa vart við að útvega Íslendingum lúxusbifreiðar í ár og landsmenn hafa meira milli handanna til bílakaupa en oft áður.
Bilaumboðin hafa vart við að útvega Íslendingum lúxusbifreiðar í ár og landsmenn hafa meira milli handanna til bílakaupa en oft áður. vísir/GVA
Rífandi sala hefur verið á dýrari lúxusbifreiðum hjá bíla­umboðum hér á landi það sem af er ári. Sölustjórar segja kaupendur dýrari bíla koma með miklu meira eigið fé til viðskiptanna en í síðasta góðæri og staðgreiða fremur en að slá bílalán.

Bílgreinasamband Íslands (BGS) býst við metári í bílasölu en á þriðja tug þúsunda fólksbíla hafa verið nýskráðir það sem af er ári. Hlutfall bílaleigubíla í nýskráningum er um 40 prósent en bílasalar brosa út að eyrum og anna vart eftirspurn.

Þó mest seldu bílar ársins það sem af er séu Toyota Yaris (721)*, Toyota Rav4 (631) og Kia Rio (574) þá gefa mun dýrari lúxusbílar þeim lítið eftir í sölutölum. BGS tók saman fjölda nýskráðra bíla til 18. nóvember eftir tegundum fyrir Fréttablaðið sem síðan fékk upplýsingar hjá umboðunum um hvaða undirtegundir væru mest seldar.

Toyota Land Cruiser er gríðarvinsæll meðal Íslendinga en 479 slíkir jeppar hafa selst á árinu samkvæmt BGS. Listaverð þeirra hjá umboði er á bilinu 8,1 til 13,2 milljónir króna, allt eftir gerðum og búnaði.

Mercedes-Benz fylgir þar fast á hæla með 462 selda bíla. Ásgrímur H. Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz hjá Öskju, segir Benz-jeppana GLC og GLE þar vinsælasta. GLC kostar á bilinu 7,4 upp í 8,8 milljónir og GLE frá 8,9 milljónum upp í fimmtán.

Range Rover jeppar frá Land Rover voru stöðutákn velmegunar fyrir hrun en í ár hefur Discovery-línan tekið yfir. Af 343 seldum Land Rover-bílum hafa 140 þeirra verið Land Rover Discovery Sport sem kosta á bilinu 6,3-8,9 milljónir króna hjá BL. Hundrað stykki hafa selst af stærri tegundinni, Land Rover Discov­ery, sem kosta frá 9,4 og upp í 15,8 milljónir. Seld hafa verið tíu stykki af stærstu tegund Range Rover sem kosta frá 18 milljónum króna.

„Okkur hefur gengið vel á árinu,“ segir Karl Óskarsson, sölustjóri Land Rover og Jaguar hjá BL. „Ég var hérna 2007 og þetta er allt annað umhverfi en þá. Lánahlutfall er afar lágt og fólk á fyrir þessu núna,“ segir Karl Óskarsson, sölustjóri Land Rover og Jaguar hjá BL.

Alls 299 Volvo-bifreiðar hafa selst á árinu en að sögn Gísla Jóns Bjarnasonar, sölustjóra Volvo, er dýrasti jeppinn, hinn glæsilegi XC90, sá mest seldi en þeir kosta frá 8,6 milljónum upp í 10,5.

„Við höfum verið í erfiðleikum með að anna eftirspurn eftir XC90,“ segir Gísli og bendir á að kaupendur Volvo séu sjaldan að sækja um lán. „Þetta er góður kaupendahópur.“

Af öðrum lúxusbílum má nefna að 101 bíll af tegundinni Porsche hefur verið seldur á árinu. Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna, segir tengiltvinnútgáfu lúxusjeppans Porsche Cayenne seljast mest. Þeir jeppar kosta tæpar 11 milljónir króna. Og Benni tekur eftir breyttri kauphegðun.

„Þetta var komið í vitleysu fyrir hrun en fólk virðist ekki vera að kaupa á 90 prósent lánum, maður sér það ekki í dag,“ segir Benni. 

Uppfært kl. 10.48 Toyota-umboðið bendir á að í tölunum sé gerður greinarmunur á Yaris og Yaris Hybrid. Talan 721 eigi við selda Yaris bensínbíla á árinu. Heildarfjöldi seldra Yaris-bifreiða á árinu sé yfir þúsund. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×