Innlent

Taka upp ný póstnúmer í dreifbýli

Atli Ísleifsson skrifar
Breytingin tekur gildi um næstu mánaðarmót.
Breytingin tekur gildi um næstu mánaðarmót. Vísir/Ernir
Pósturinn mun gera breytingar á póstnúmerum landsins frá og með næstu mánaðamótum. Í tilkynningu segir að breytingarnar feli í sér að sérstakt póstnúmer verði tekið upp á svæðum í dreifbýli sem áður féllu undir sama póstnúmer og næsti þéttbýliskjarni. Hægt verði að þekkja flest nýju póstnúmerin á því að síðasta talan í þeim hækkar um einn.

„Til útskýringar þá mun póstnúmerið 690 Vopnafjörður áfram gilda fyrir póst sem sendur er til fólks og fyrirtækja í þéttbýlishluta sveitarfélagsins en dreifbýli við Vopnafjörð fær póstnúmerið 691.  Annað dæmi um breytingar er póstnúmerið 116 Reykjavík, öðru nafni Kjalarnes, en það náði til allra sveitabæja frá Esjurótum út í Tíðarskarð sem og yfir þéttbýlið á Kjalarnesi. Eftir breytinguna verður dreifbýlið á svæðinu með póstnúmerið 162 Reykjavík en þéttbýlið með 116 Reykjavík eins og áður.

Ásbrú, sem er á gamla varnarsvæðinu, fær nú sitt eigið póstnúmer sem verður 262 Reykjanesbær. Þá verður Keflavíkurflugvöllur héðan í frá með sína eigin áritun, verður hún 235 Keflavíkurflugvöllur. 

Breytingarnar munu ekki hafa áhrif á dreifingu pósts og mun póstur berast til viðtakenda jafnvel þótt eldra póstnúmer sé ritað við heimilisfang. Íbúar á svæðum sem breytingarnar taka til þurfa ekki að uppfæra opinberar heimilisfangsskráningar þar sem Pósturinn mun tilkynna um breytingarnar beint til Þjóðskrár. Sjálfsagt er þó að biðja fólk og fyrirtæki um að uppfæra vefsíður og fleira slíkt ef tilefni er til og benda sendendum pósts á að nota rétt póstnúmer. Nýju póstnúmerin taka, sem áður sagði, gildi þann 1. desember 2017 næstkomandi.

Póstnúmeraþekja fyrir landið er aðgengileg á postur.is/postnumer en þar er hægt að sjá hnitsett landfræðileg mörk póstnúmera,“ segir í tilkynningunni.

Listi yfir nýju póstnúmerin:

 

Póstnúmer frá  1. desember 2017

Staður/áritun

Póstnúmer fyrir

Staður/áritun

162

Reykjavík

116

Reykjavík

191

Vogar

190

Vogar

241

Grindavík

240

Grindavík

246

Sandgerði

245

Sandgerði

251

Garður

250

Garður

341

Stykkishólmur

340

Stykkishólmur

351

Grundarfjörður

350

Grundarfjörður

381

Reykhólahreppur

380

Reykhólahreppur

416

Bolungarvík

415

Bolungarvík

421

Súðavík

420

Súðavík

426

Flateyri

425

Flateyri

431

Suðureyri

430

Suðureyri

461

Tálknafjörður

460

Tálknafjörður

466

Bíldudalur

465

Bíldudalur

511

Hólmavík

510

Hólmavík

546

Skagaströnd

545

Skagaströnd

561

Varmahlíð

560

Varmahlíð

581

Siglufjörður

580

Siglufjörður

626

Ólafsfjörður

625

Ólafsfjörður

676

Raufarhöfn

675

Raufarhöfn

686

Bakkafjörður

685

Bakkafjörður

691

Vopnafjörður

690

Vopnafjörður

711

Seyðisfjörður

710

Seyðisfjörður

731

Reyðarfjörður

730

Reyðarfjörður

736

Eskifjörður

735

Eskifjörður

741

Neskaupstaður

710

Neskaupstaður

751

Fáskrúðsfjörður

750

Fáskrúðsfjörður

756

Stöðvarfjörður

755

Stöðvarfjörður

761

Breiðdalsvík

760

Breiðdalsvík

766

Djúpavogur

765

Djúpavogur

846

Flúðir

845

Flúðir

881

Kirkjubæjarklaustur

880

Kirkjubæjarklaustur

235

Keflavíkurflugvöllur

235

Reykjanesbær

262

Reykjanesbær

235

Reykjanesbær

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×