Leikjavísir

Óli furðar sig á nærbuxum Egypta

Samúel Karl Ólason skrifar
Óli Jóels úr GameTíví henti sér nýverið til Egyptalands og spilaði nýjasta Assassins Creed leikinn.
Óli Jóels úr GameTíví henti sér nýverið til Egyptalands og spilaði nýjasta Assassins Creed leikinn.
Óli Jóels úr GameTíví henti sér nýverið til Egyptalands og spilaði nýjasta Assassins Creed leikinn sem heitir Assassins Creed Origins. Hann tók Tryggva með sér til stuðnings þegar hann spilaði leikinn og vann að því að frelsa nokkra presta úr virki vondra karla.

Eftir nokkra stund taldi Óli sig hafa fundið einn stærsta galla leiksins, sem á að gerast skömmu fyrir árið núll. Það var þegar hann fann vörð í hvítum nærbuxum.

„Þegar þú ert í Egyptalandi er ekki eins og það séu þvottavélar í hverju húsi. Þá er maður ekki í skær-hvítum nærbuxum. Eða bara nærbuxum yfir höfuð,“ sagði Óli þegar hann sá vörð í nærbuxum.

Umræddar nærbuxur má sjá hér að neðan. Þar má einnig sjá strákana spila sig í gegnum Assassins Creed Origins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×