Bakþankar

Kórar Íslands

Jóna Hrönn Bolladóttir skrifar
Eitt sinn um þetta leyti árs þegar ég var 14 ára gömul kom í ljós að Marsibil á Grund var orðin eina altröddin í kirkjukórnum í sveitinni. Þetta var ófremdarástand og faðir minn sem var starfandi sóknarprestur linnti ekki látum fyrr en ég var komin á æfingu, langyngst, við hliðina á Marsibil sem söng hátíðartón sr. Bjarna með sinni rámu en styrku rödd upp í eyrað á unglingnum.

Ég get ekki sagt að þetta hafi aukið áhuga minn á tónlist enda var ég að hlusta á Wham, Boy George og Annie Lennox. En það sem vakti áhuga minn var að vera tekin gild í samfélagi hinna fullorðnu og finna hve vel kórfélagar í Laufáskirkju kunnu að meta það að ég skyldi mæta á æfingar og standa mína plikt við jólahelgihaldið þegar að því kom.

Ég hef notið þeirrar gleði á síðustu vikum að fylgja eftir Gospelkór Jóns Vídalíns í keppninni Kórar Íslands og það hefur yljað mér að sjá unga fólkið mitt innan um allt þetta reynsluríka fullorðna fólk sem hefur sungið í kórum árum og áratugum saman sjálfu sér og öðrum til gleði. Eitt af því sem þátttaka í Þjóðkirkjunni gefur er stuðningur við tónlistarlíf þar sem einstaklingar á öllum aldri fá tækifæri til tónlistarmenntunar í gegnum kórsöng. Við í Vídalínskirkju í Garðabæ erum stolt að geta sagt að þar stundi fólki á aldrinum 7 til 87 ára vikulegar söngæfingar. Þar er kynslóðabilið svo sannarlega brúað.

Tónlist færir sálarfrið og því er hún ómissandi í mannlífinu og ríkur þáttur í lífi og starfi kristinnar kirkju um allan heim. Guðfræðingurinn Sören Kierkegaard sagði eitt sinn: „Þangað sem geislar sólar ná ekki geta tónarnir náð.“ Mig langar að þakka Stöð 2 fyrir þennan sér­íslenska sjónvarpsþátt um kórastarf í landinu. Vel gert!

 

Höfundur er pistlahöfundur Fréttablaðsins.






×