Golf

Ólafía kemur ekki lengur á óvart

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. vísir/getty
„Ég skal fúslega viðurkenna það, að ég sá þetta ekki fyrir í byrjun árs en þetta er svo flottur árangur hjá henni,“ segir Karen Sævarsdóttir, sigursælasti kvennakylfingur Íslands, um Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur en hún hefur leik á lokamóti LPGA-mótaraðarinnar klukkan 15.20 að íslenskum tíma í dag.

Aðeins 82 efstu kylfingar mótaraðarinnar fá boð CME Group Toure Championship eins og það heitir á enskunni en það fer fram á Flórída í Bandaríkjunum. Þeir kylfingar sem komast á mótið eru jafnframt öruggir með fulla aðild að mótaröðinni á næsta ári.

„Það sem hún hefur gert svo vel er að spila sig inn á mótin á lokametrunum. Það er bara frábært og sýnir að þó okkur finnist skorið hjá henni ekki alltaf það besta er það á meðal þeirra bestu á hverjum tíma. Hún er að spila vel undir pressu en það eru margir sem eiga það til að brotna undan pressunni. Þetta er þannig mót að ef hún kæmist ekki fengi enginn annar boð. Þetta er bara fyrir þær bestu,“ segir Karen sem mun lýsa mótinu á Golfstöðinni.

Bara á bleiku skýi

Ólafía er nú þegar búin að spila á 25 mótum á mótaröðinni, þar af þremur af fimm risamótum ársins sem er svakalega gott fyrir nýliða.

„Hún hefur verið svo öflug undir lokin eins og núna á síðustu mótunum þar sem hún keppti á fjórum af fimm mótunum sem voru í Asíu. Það er alveg frábært og ég hef bara mikla trú á henni núna,“ segir Karen sem þorði ekki að vera svona bjartsýn í byrjun árs.

„Ef þú hefðir spurt mig þegar þetta allt saman byrjaði hvort Ólafía væri að fara að spila í Asíusveiflunni og á lokamótinu hefði ég átt erfitt með að segja það. Ekki nema bara svífandi á einhverju bleiku skýi. En hér er hún, stjarnan okkar, og það er bara frábært. Hún er að spila með bestu stelpunum.“

Ólafía sveiflar á LPGA-mótaröðinni.vísir/getty
Ólafía hefur verið að spila undir mikilli pressu undanfarið og staðið sig vel. Mun hún njóta sín undir minni pressu eða er hún orðin vön mikilli pressu, að mati Karenar?

„Bæði og. Maður vill alltaf vera hógvær með væntingarnar en mér finnst það afrek þó að hún verði í neðri hlutanum,“ segir Karen.

Þorir að vona

Alls eru 250 milljónir íslenskra króna í verðlaunafé á lokamóti LPGA-mótaraðarinnar og sigurvegarinn tekur heim 65 milljónir. Þetta er hæsta verðlaunaféð á mótaröðinni ef undan eru skilin risamótin fimm.

Alls hefur Ólafía þénað 22 milljónir króna í verðlaunafé á mótunum 25 og hún getur bætt ríkulega í sarpinn um helgina gangi allt vel. Karen stillir væntingum sínum í hóf en bendir á eina staðreynd um mótið.

„Í fyrra vann þetta tvítug ensk stelpa sem heitir Charley Hull. Það var og er hennar eini sigur á LPGA-mótaröðinni. Þetta er stelpa sem hefur bara slegið í gegn í Solheim-bikarnum en er engin stórstjarna þannig að augljóslega er allt hægt,“ segir Karen.

„Ég er alls ekki að segja að Ólafía sé endilega að fara að vinna mótið en ég er hætt að kippa mér upp við það þegar að hún stendur sig vel. Hún kemur mér ekki lengur á óvart. Maður verður bara að bíða spenntur þar til þetta hefst og vona það besta en það er allt hægt“ segir Karen Sævarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×