Glamour

Sjöundi áratugurinn áberandi á tískupöllunum

Ritstjórn skrifar
Prada, Jane Birkin árið 1969, Gucci
Prada, Jane Birkin árið 1969, Gucci Glamour/Getty
Frjáls klæðnaður, útvíðar buxur, mynstur og margt annað sem einkenndi sjöunda áratuginn hefur verið mjög áberandi á tískupöllunum síðustu árstíðir. 

Konur eins og Twiggy, Jane Birkin og Brigitte Bardot voru aðal tískufyrirmyndirnar á þessum tíma, ásamt rokkstjörnunum í The Rolling Stones. Á þessum tíma var mikið að gerast í tónlistar- og tískuheiminum og áhrifin mikil frá þessu áberandi fólki. Tónlistarheimurinn sótti innblástur í tískuheiminn og öfugt. Oft var ekki mikill munur á fatnaði kynjanna sem er einmitt það sem er að gerast í tískuheiminum í dag, en skilin á milli kynjanna eru hægt að þurrkast út. 

Stutt pils, útvíðar buxur, upphá stígvél og engar reglur eru orðin sem einkenna þennan stíl og gera enn í dag.  Áhrifin frá tímabilinu eru óneitanlega mikil þegar horft er til tískuhúsanna Marc Jacobs og Gucci, og mun ekki líða á löngu þar til við sjáum þau í verslunum og á klæðaburði fólksins í kringum okkur.  



 

Chanel
Chanel
Anita Pallenberg og Keith Richards árið 1969.
Brigitte Bardot og Christian Kalt árið 1971.
Twiggy fyrir Vogue árið 1967.
Fyrirsætan Donyale Luna árið 1968.
Marc Jacobs





×