Bakþankar

Öllu fórnandi

Sirrý Hallgrímsdóttir skrifar
Fyrir viku síðan.

Kjósandi: Logi, er ekki öruggt að Samfó vill þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB?

Logi: Auðvitað, þetta er mesta hagsmunamál þjóðarinnar, annað kemur ekki til greina, ófrávíkjanlegt!

Kjósandi: Og þið ætlið að koma Sjálfstæðisflokknum frá og láta verða af þessu?

Logi: Nákvæmlega, Samfylkingin stendur við sitt eina stefnumál, ESB er málið, evran er málið. Viltu ekki lægri vexti og betra veður, evrópskt veður?

Kjósandi: Já, rólegur, er þetta þá eina stefnumálið ykkar?

Logi: Tja, kannski ekki alveg eina, en já, þetta er aðalmálið, halda áfram með aðildarferlið, þjóðin á kröfu á því að fá að kjósa, engar refjar.

Fimmtudagurinn í þessari viku.

Kjósandi: Logi, er ekki öruggt að Samfó vill þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB?

Logi: Ehm, jú, sjáðu, þetta er nú kannski ekki alveg einfalt mál.

Kjósandi: Ha, eruð þið ekki að fara í ríkisstjórn?

Logi: Það er algjörlega klárt mál að ef Samfylkingin ætlar að vera áhrifavaldur í íslenskum stjórnmálum á næstu árum þá þurfum við að vera skynsöm og raunsæ og við munum nálgast málið út frá því – (hér endurtekur Logi svar sitt á RÚV um sama mál).

Kjósandi: Bíddu, ertu að segja að það sé skynsemi og raunsæi að leyfa ekki þjóðinni að kjósa um áframhaldandi aðildarumsókn?

Logi: Það hefur margt breyst.

Kjósandi: Frá því í síðustu viku?

Logi: Æ, þú skilur ekki stjórnmál.

Kjósandi: Heyrðu Logi, er það kannski pólitískt ómögulegt fyrir þessa ríkisstjórn að leyfa þjóðinni að greiða atkvæði um málið?

Logi: Tja, já svona þannig, já.

Kjósandi: Pólitískur ómöguleiki, já, nú skil ég.

 

Höfundur er pistlahöfundur Fréttablaðsins.






×