Tónlist

Ný plata frá Björk í nóvember

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björk á tónleikum í Eldborg í fyrra.
Björk á tónleikum í Eldborg í fyrra. vísir/getty
Ný plata frá tónlistarkonunni Björk er væntanleg í lok nóvember. Þetta tilkynnti Björk á Facebook-síðu sinni fyrr í dag.

Platan heitir Utopia en tónlistina vinnur Björk með Arca, tónlistarmanni frá Venesúela sem vann jafnframt með Björk að seinustu plötu hennar, Vulnicura.

Í Facebook-færslunni þakkar hún Arca innilega fyrir samstarfið og birtir mynd plötuumslagsins sem er hönnuð af Jesse Kanda með aðstoð frá Björk sjálfri, hönnuðinum James Merry og Hungry. Þakkar hún hönnuðunum kærlega fyrir samstarfið einnig.

Fyrsta lagið af plötunni, The Gate, kom út í byrjun september í takmörkuðu upplagi. Í frétt á vefsíðu sinni sagði Björk að lagið væri ástarlag en fjallaði þó um ástina á einhvers konar yfirskilvitlegan hátt.

„Vulnicura var um mjög persónulegan missi og ég held að nýja platan sé um ást sem er jafnvel ennþó stærri. Hún fjallar um að enduruppgötva ástina en á andlegan hátt, ef svo má að orði komast,“ sagði Björk og vísaði í Vulnicura sem fjallaði um skilnað hennar og listamannsins Matthew Barney.


Tengdar fréttir

Björk kom aðdáendum sínum á óvart á Instagram

"Ég er mjög spennt fyrir því að geta tilkynnt ykkur að nýja platan mín er á leiðinni mjög fljótlega,“ segir söngkonan Björk Guðmundsdóttir, í tilkynningu á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×