Skoðun

Ryk í augu kjósenda

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
„Það er umhugsunarvert þegar fjöldi stjórnmálamanna leggur sig fram um að blekkja almenning með yfirlýsingum sínum um að hægt sé að lækka vexti verulega með því einu að banna verðtryggingu. Þetta er sennilega ein glæfralegasta og vitlausasta hugmynd sem sett hefur verið fram af stjórnmálamönnum hér á landi í seinni tíð.“

Þarna hitti Þorsteinn Víglundsson, frambjóðandi Viðreisnar og félagsmálaráðherra, naglann á höfuðið í innsendri grein í Fréttablaðinu í vikunni. Því miður eru allt of fáir íslenskir stjórnmálamenn sem hugsa hlutina til enda. Í þessum efnum virðast menn endurtaka vitleysuna hver eftir öðrum án þess um að kynna sér málið til hlítar.

Eða, varla ætlum við nokkrum stjórnmálamanni að tala gegn eigin sannfæringu?

Krónublinda margra íslenskra stjórnmálamanna og annarra framámanna í þjóðlífinu er mögulega skýrasta dæmið um þetta. Vaxtastig er mæling á áhættu. Ástæðan fyrir háum vöxtum hér á landi hefur þannig ekkert með verðtryggingu að gera.

Verðtryggingin er séríslenskt tæki til að verja atvinnulífið fyrir verðbólgunni og þeim miklu sveiflum sem sögulega hafa verið á gengi krónunnar. Lögbundin verðtrygging þekkist heldur varla annarsstaðar á byggðu bóli, og alls ekki í evrulöndunum svo dæmi sé tekið.

Rétt er að benda á að sérfræðinganefnd Seðlabankans hefur varað við því að heimilin í landinu myndu stórtapa á afnámi verðtryggingar, enda myndi kaupmáttur minnka, fasteignaverð stórlækka og landsframleiðsla dragast saman.

Ástæða fyrir háum vöxtum hér á landi er krónan, og sú staðreynd að viðskipti í krónum fela í sér meiri áhættu og þar af leiðandi hærri verðmiða en viðskipti með myntir flestra landa sem við erum samferða í veröldinni. Döpur reynslan kennir okkur að það er í besta falli óraunsætt og í versta falli óheiðarlegt að halda öðru fram.

Stórar hugmyndir Miðflokksins um endurskipulagningu bankakerfisins eru því miður sama marki brenndar. Hluti þeirra gerir ráð fyrir stofnun netbanka sem falið verður að lækka vaxtastig og bæta önnur kjör. Aftur þá er verið að leita sökudólgs á röngum stað. Vaxtastigið er ekki bönkunum að kenna, heldur gjaldmiðlinum.

Þjóðmálaumræða hér á landi, og að því er virðist sérstaklega fyrir þessar kosningar, einkennist því miður of oft af innihaldslausum klisjum án þess að hugsað sé á nokkurn hátt um útfærsluna.

Verðtryggingin og vaxtastigið er eitt, og annað eru útgjaldahugmyndir Vinstri grænna og fleiri sem lofa tug milljarða innviðafjárfestingu. Þær á að borga með hátekju- og auðlegðarskatti. Gallinn er sá að þegar fræðimenn líta undir húddið kemur í ljós að slíkur skattur gæti í besta falli fjármagnað fjögur til átján prósent útgjaldaloforðana.

Þarf ekki að gera kröfur um nákvæmari framsetningu hjá fólki sem vill komast í ríkisstjórn?

"Eða, varla ætlum við nokkrum stjórnmálamanni að tala gegn eigin sannfæringu?"




Skoðun

Sjá meira


×