Lífið

Fékk loksins að faðma föður sinn eftir tíu ára leit: „Ég missti allar varnir. Það fór allt“

Benedikt Bóas og Stefán Árni Pálsson skrifa
Linda hefur leitað að föður sínum í yfir áratug.
Linda hefur leitað að föður sínum í yfir áratug.
Önnur þáttaröð af Leitinni að upprunanum hófst á Stöð 2 fyrir rúmlega viku en sú fyrri vakti mikla athygli og sópaði að sér verðlaunum. Í fyrsta þættinum var ótrúleg saga Lindu Rutar Sigríðardóttur sögð, en hún komst að því 17 ára gömul að maðurinn sem hún taldi vera föður sinn væri það ekki, heldur væri hún í raun dóttir Breta sem hvarf á dularfullan hátt frá Súðavík fyrir nærri 30 árum.

Í gærkvöldi var seinni hlutinn um mál Lindu Rutar á Stöð 2 og var þá komið að því að fara út til Bretlands og reyna að finna Richard Guildford. Linda og Sigrún ferðuðust yfir í strandbæinn Weymouth til að freista þess að finna manninn.

Linda hefur leitað að föður sínum í rúman áratug, án árangurs en í þættinum í gærkvöldi náði hún loksins ætlunarverki sínu og fékk að hitta föður sinn. Hún komst einnig að því að hún ætti í raun bróðir og hitti Linda feðgana báða.

Linda gengur hér til föður síns.
Leitin gekk ekki áreynslulaust fyrir sig og þurfti gengið að yfirstíga margar hindranir í Weymouth.

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir er umsjónarmaður þáttanna og tilkynnti hún Lindu í þættinum í gærkvöldi að þau hefðu loksins fundið föður hennar. Viðbrögð hennar voru eðlilega magnþrungin og tóku tilfinningarnar yfir.

„Þegar Sigrún segir við mig, á ég að segja þér? Ég missti allar varnir. Það fór allt,“ segir Linda Rut.

„Ég er svo þakklát að eiga þessa sögu og í svona svakalega fagmannlegu formi. Ég hefði aldrei geta ímyndað mér betra fólk til að skrásetja sögu mína. Sigrún er frábær og þessi nokkrir dagar í Weymouth líða mér seint úr minni. Þetta var yndislegt.“

Nánar verður rætt við Lindu í Fréttablaðinu á morgun.

Hér að neðan má sjá brot úr þættinum í gær.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×