Glamour

Galdurinn við ,,gillið"

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Hver elskar ekki að vera gillaður? Það eru þó nokkur atriði sem gott er að hafa í huga til að bjóða upp á ógleymanlegt gill

  • Ekki vera á sama stað of lengi, ágætis viðmið er að telja upp á 30 og skipta svo um stað. 
  • Snertingin má ekki vera of hörð eða of mjúk, reyndu að hafa hinn gullna meðalveg í huga.
  • Ef þú vilt vera extra metnaðargjarn/gjörn skaltu nota báðar hendur.
  • Besta staðsetning á gilli er að margra mati hnakkadrambið!
  • Það er mjög mikilvægt að hafa hugann við verknaðinn, ekki vera í símanum eða tölvunni. Láttu þann sem verið er að gilla finna að þú sért að vanda þig. 
  • Vertu óhrædd/ur við að fara aðeins út fyrir rammann og prófa nýja staði líkt og andlit, hendur og fætur.
  • Gefðu þér góðan tíma í gillið, það er fátt meira pirrandi en að fá örstutt gill – þá getur þú alveg eins sleppt því. 
  • Til er nokkurskonar gill kló sem hægt að er að notast við ef þú ert í vandræðum
 






×