Bílar

Frábær tilþrif íslenskra torfærukappa í Tennessee

Finnur Thorlacius skrifar
Hart var tekist á í Tennessee.
Hart var tekist á í Tennessee.
Fjórtán íslenskir torfærubílar kepptu um síðustu helgi í torfærukeppni í Bandaríkjunum. Keppt var í torfærugarði sem heitir Bikini Bottoms Offroad Park og er í Dyersburg, Tennessee. Þetta er annað árið í röð sem Íslenska torfæran keppir á þessu svæði.

Miðvikudagurinn fór allur í að taka úr 4 gámum með öllum bílunum í og koma öllu fyrir. Fimmtudagurinn var prufudagur, en þá gátu þátttakendur reynt bílana sína fyrir öll átökin. Keppni hófst svo á föstudeginum með 5 brautum og svo með 6 brautum á Laugardeginum. 

Það var gríðarleg barátta á milli manna og mjög jafnt var á milli keppenda meirihlutann af keppninni. Talsvert mikið ryk var á svæðinu og mikil sól og hiti en það gerði þetta allt bara skemmtilegra. Þór Þormar Pálsson á THOR endaði sem sigurvegarinn eftir frábæran og skemmtilegan akstur.

THOR liðið ákvað í lokabrautinni að festa flugeldaköku á þakið á bílnum þar sem vatnaaksturinn var keyrður í myrki með ljósum og kveikt var í kökunni þegar hann lagði af stað og hann flaut alla leið yfir og tryggði sér sigurinn. Kanninn var heldur betur skemmt með þessu atriði.

Þetta var fyrsti sigurinn hjá Þór Þormar í torfæru. Hann endaði í 3. sæti í Íslandsmótinu í ár. Í öðru sæti í keppninni var Geir Evert Grímsson á Sleggjunni. Geir leiddi keppninni meirihlutann af seinni deginum og var með smá forskot á Þór fyrir síðustu braut en komst ekki alla leið yfir í vatninu í fyrstu og tapaði miklum tíma. En Geir Evert var að keyra fantavel alla keppnina.

Í þriðja sæti var svo Guðmundur Ingi Arnarson Íslandsmeistarinn 2017 á Ljóninu. Fösturdagurinn var ekki hans dagur og hann var neðarlega en með frábærum og góðum akstri á laugardeginum náði hann að komast uppí 3. sætið. Tilþrifaveðlaunin fóru svo til Guðlaug Sindra Helgasonar á Galdragul.

Eftir fyrri keppnisdaginn leiddi Magnús Sigurðsson á Kubbnum og Gísli G. Jónsson var í öðru sæti en þeim gekk ekki nógu vel á seinni deginum og enduðu neðar. Gísli keppti síðast á Akureyri árið 2012 en Gísli er margfaldur Íslandsmeistari í Torfæru. 

Heilt yfir var kaninn himinlifandi með þessa keppni og stemningin á svæðinu var rosalega góð og allir skemmtu sér frábærlega, keppendur, aðstoðarmenn, áhorfendur og keppnishaldarar. Bandaríkjamenn kepptu á milli á Rock Bounser bílum sem er aðeins öðruvísi torfæra en við erum vön og kom það mjög vel út.

Sjá má frábær tilþrif hjá íslensku keppendunum í Tennessee í meðfylgjandi myndskeiði.

Úrlitin í Tennessee urðu þessi.

 

Þór Þormar Pálsson

THOR

    

2710

Geir Evert Grímsson

Sledgehammer

2652

Guðmundur Arnarsson

The Lion

2583

Gestur J. Ingólfsson

The Dream

2480

Magnús Sigurðsson

Cube

2312

Ingólfur Guðvarðarson

Guttinn Reborn

2292

Elias Guðmundsson

Rodeo

2290

Guðlaugur Helgason

Yellow Magic

2090

Gísli G. Jónsson

Jeepster

2070

Bjarki Reynisson

The Animal

1908

Haukur Einarsson

Hekla

1820

Svanur Tómasson

Insane

1665

Jón vilhjálmsson

Doctor

1480

Kristján Birgisson

Katla Turbo

590






×