Innlent

Fimm ferðamenn handteknir eftir bílveltur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ferðamennirnir veltu bílum sínum skammt frá Þórshöfn á Langanesi.
Ferðamennirnir veltu bílum sínum skammt frá Þórshöfn á Langanesi. Vísir/Pjetur
Fimm erlendir ferðamenn gista nú fangageymslur á Þórshöfn á Langanesi og á Akureyri eftir að bílaleigubílar þeirra ultu úr af þjóðveginum í grennd við Þórshöfn með klukkustundar millibili í gærkvöldi.

Engin slasaðist alvarlega, en engin viðurkennir að hafa ekið bílunum. Þrír voru í öðrum bílnum og tveir í hinum og neita allir að hafa ekið bílunum. Þeir voru því vistaðir í fangageymslum og verða yfirheyrðir í dag.

Lögreglumenn frá Þórshöfn, Húsavík og á Akureyri tóku þátt í afgreiðslu málanna. Bílvelturnar eru ekki taldar tengjast að öðru leyti en að þær hafi báðar átt sér stað á svipuðum slóðum. Bílarnir eru báðir talsvert skemmdir.

Þá hefur færð á hálendisvegum spillst undanfarna daga og eru margir þeirra orðnir ófærir að sögn Vegagerðarinnar. Hún bendir vegfarendum á að fylgjast vel með færðarkortinu á heimasíðu Vegagerðarinnar og athuga vel veðurspá, ef þeir ætla inn á hálendið.

Annars var víða hálka á fjallvegum í nótt, eins og til dæmis á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði og á Vestfjörðum var líka hálka á Hálfdán og Dynjandisheiði. Fréttaastofunni er ekki kunnugt um slys eða óhöpp sem rakin hafa verið beint til hálkunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×