Bílar

Tesla rekur hundruði starfsmanna

Finnur Thorlacius skrifar
Heilmikil vandræði virðast innanhúss hjá Tesla nú um stundir.
Heilmikil vandræði virðast innanhúss hjá Tesla nú um stundir.
Rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla í Bandaríkjunum rak um 400 starfsmenn sína í síðustu viku, þar á meðal fjölmarga yfirmenn og hópstjóra. Svo virðist sem heilmikil vandræði séu nú í herbúðum Tesla þar sem fyrirtækinu tekst illa upp við að auka framleiðslu sína þó svo yfir 450.000 pantanir liggi fyrir af nýjasta bíl Tesla, Model 3.

Tesla er langt á eftir fyrri áætlunum um framleiðsluhraða og svo virðist sem geta fyrirtækisins til að auka við hann sé takmörkuð og það fer illa í yfirstjórn Tesla og því gætu þessar brottvikningar endurspeglað þann pirring. Tesla lét ekki vita af þessum brottvikningum, en fréttir þess efnis bárust í fyrstu frá fyrrum starfsmanni Tesla.

Í fyrri áætlunum Tesla hefði nú átt að vera farin af stað heilmikil fjöldaframleiðsla á Tesla Model 3 bílnum, en engan veginn tekst að hraða framleiðslunni að neinu marki og á þriðja ársfjórðungi ársisns, frá júlí til september tókst aðeins að framleiða 260 Model 3 bíla. Á meðan bíða óþreyjufullir kaupendur, sem fyrir löngu hafa pantað sinn Model 3 bíl og horfa bara á að afgreiðslutíminn mun áfram lengjast og það umtalsvert ef Tesla fer ekki að takast að auka hraðann í framleiðslunni.






×