Skoðun

Kjóstu menntun 28. október

Ragna Sigurðardóttir skrifar

Þann 14. september síðastliðinn setti Stúdentaráð Háskóla Íslands af stað greinaskriftarátak vegna undirfjármögnunar háskóla á Íslandi eins og hún birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2018. Daginn eftir sprakk ríkisstjórnin. Stúdentaráð stöðvaði því greinaskrif tímabundið þar sem ýmislegt, þar á meðal fjárlög, voru í óvissu.



Nú liggur fyrir að kosið verður á ný til Alþingis, 364 dögum eftir síðustu kosningar. Hagsmunahreyfingar stúdenta telja nauðsynlegt að hafa málefni eins og fjármögnun háskólastigsins í forgrunni þegar kemur að vali á fulltrúum á þingi og umræðum um nýja ríkisstjórn. Stúdentaráð hefur því blásið á ný til átaks vegna undirfjármögnunar háskólanna og í þetta sinn í samstarfi við LÍS – Landssamtök íslenskra stúdenta.



Fulltrúar allra háskólanema á Íslandi sem og íslenskra háskólanema erlendis munu því skrifa greinar á næstu dögum og vikum um málefni sem standa þeim nærri. Íslenskt háskólakerfi fær ekki þá athygli og fjármögnun sem til þarf og stjórnvöld verða að stíga alvöru skref til þess að kerfið þjóni bæði nemendum og samfélaginu sem skyldi. Eins og kunnugt er hefur aðgengi að menntun og menntunarstig þjóða bein áhrif ekki aðeins á efnahag, heldur líka á gildi, þekkingu og viðhorf einstaklinga sem er til hagsbóta fyrir samfélagið.1,2

Það er því kominn tími til að íslenskt háskólakerfi sé fjármagnað með fullnægjandi hætti. Til þess þarf metnað stjórnvalda. Í komandi kosningum teljum við í Stúdentaráði að mikilvægt sé að hafa skýra framtíðarsýn fyrir Ísland í alþjóðlegu samhengi. Stúdentaráð Háskóla Íslands hvetur því stjórnmálaflokka á Íslandi til að beita sér fyrir bættri fjármögnun háskólastigsins og kjósendur að kjósa menntun þann 28. október.



#kjóstumenntun.



1Barr, N. (2012). The Economics of the Welfare State (5. útgáfa). New York, New York: Oxford University Press.



2Brennan, J., Durazzi, N., og Séné T. (2013, 21. október). Things we know and don't know about the Wider Benefits of Higher Education: A review of the recent literature. BIS research paper number 133 - Department for Business Innovation & Skills. Sótt 1. október 2017 af



https://www.gov.uk/government/uploads/system/uploads/attachment_data/file/251011/bis-13-1244-things-we-know-and-dont-know-about-the-wider-benefits-of-higher-education.pdf

Greinin er hluti af átaki Stúdentaráðs Háskóla Íslands í samstarfi við LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta vegna fjármögnunar háskólastigsins í aðdraganda Alþingiskosninga 2017. Kassamerki átaksins er #kjóstumenntun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Er þetta eðli­legt?

Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar

Sjá meira


×