Tíu menn Tottenham héldu út áhlaup West Ham

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Harry Kane átti góðan dag í dag
Harry Kane átti góðan dag í dag vísir/getty
Tíu menn Tottenham sigldu heim sigri á West Ham í opnunarleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Harry Kane tvöfaldaði markatölu sína á tímabilinu með tveimur mörkum í fyrri hálfleik. Daninn Christian Eriksen kom gestunum svo í 3-0 á 60. mínútu og leit allt út fyrir að úrslitin væru ráðin.

Javier Hernandez klóraði hins vegar í bakkann fyrir West Ham á 65. mínútu og þrumuskalli Cheikhou Kouyaté á 87. mínútu gerði lokamínúturnar æsispennandi í Lundúnum.

Serge Aurier gerði Tottenham enga greiða með því að láta reka sig af velli á 70. mínútu með sitt annað gula spjald. Hann braut þá á Andy Carroll og gat Michael Oliver ekki annað en sent Aurier í sturtu.

Lærisveinar Mauricio Pochettino héldu þetta þó út og náðu sér í þrjú stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira